Íhugar framboð til varaformanns
Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri segist óska nýjum meirihluta Besta flokksins og Samfylkingar í borgarstjórn velfarnaðar í störfum.
Ljóst sé að hún og hennar flokkur hefðu viljað sjá hlutina gerast öðruvísi. Hún segir það hafa komið sér á óvart hve fljótt meirihlutaviðræður hófust en vill ekkert fullyrða um hvort þessir flokkar hafi verið búnir að ræða saman fyrir kjördag. Besti flokkurinn hafi t.d lagt mikla áherslu í sinni kosningabaráttu á að koma á nýjum vinnubrögðum í borgarstjórn.
„Við töluðum fyrir samstarfi allra flokka og höfðum mikla trú á því að það myndi vera heillavænlegast fyrir borgarbúa og í samræmi við niðurstöðu kosninga. Þau kjósa að fara aðra leið, leið sem menn hafa farið oft áður við hefðbundna meirihlutamyndun. Ég tek þeirri niðurstöðu,“ segir Hanna Birna í samtali við mbl.is.
Spurð hvernig hún muni nú starfa í minnihluta segist hún og hennar fólk leggja sig fram um að vinna vel og ærlega í öllum málum sem tengjast Reykjavíkurborg. „Með þessari ákvörðun að búa til hefðbundinn meirihluta þá erum við komin í minnihluta, sem takmarkar okkar aðgengi. Hugmyndir mínar gengu út á samstjórn allra flokka. Við munum sem stærsti flokkurinn í minnihluta að sjálfsögðu axla þá ábyrgð og gera það vel,“ segir Hanna Birna ennfremur.
Margir nefnt við hana framboð til varaformanns
Hanna Birna segist ætla að taka áfram að sér það verkefni að vera oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, hugurinn stefni ekki annað. Hún er hins vegar enn að íhuga framboð til varaformanns Sjálfstæðisflokksins, en landsfundur flokksins fer fram síðar í þessum mánuði.
„Ég sagði það fyrir viku síðan, og stend við það, að ég er með það til skoðunar hvort ég býð mig fram eða ekki. Margir hafa nefnt þetta við mig og mér finnst ég bera skylda til að skoða það vel. Ég mun fljótlega gera upp hug minn en verkefnin til þessa hafa verið næg,“ segir Hanna Birna.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins fer fram í lok mánaðarins. Sem kunnugt er sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir af sér sem varaformaður flokksins og í það embætti er komið eitt framboð; frá Ólöfu Nordal þingmanni. Bjarni Benediktsson gefur áfram kost á sér í embætti formanns og enn sem komið er hefur enginn ákveðið að fara gegn honum.
Bloggað um fréttina
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir Hanna Birna! -
Ólafur Jóhannsson Flottur varaformaður -
Jón Baldur L'Orange Kona vel til forystu fallin -
Axel Jóhann Axelsson Frábærir valkostir í varaformannssætið -
Sigríður Laufey Einarsdóttir Uppgjör óhjákvæmilegt -
Axel Jóhann Hallgrímsson Kona á framabraut -
Einar Guðjónsson Verður 10% flokkur -
Jóhannes Ragnarsson Hanna Birna verður flott með Stjána Júl -
Guðrún Emilía Guðnadóttir Varaformanninn -
-
Ragnheiður taka skrefið til fulls -
Sigurbjörg Eiríksdóttir Formaður. -
Flosi Kristjánsson Flottasti kandídatinn í ár -
Finnur Bárðarson Varaformaður? -
Guðbjörg Soffía Magnúsdóttir Hönnu Birnu sem formann -
Guðmundur Júlíusson Íhugar varaformannsframboð -
Ásdís Sigurðardóttir Hanna Birna, það er formaðurinn eða ekkert !!! -
Kristinn Karl Brynjarsson Núna eða seinna? -
Jón Valur Jensson Hanna Birna ENN að íhuga varaformannsframboð?
Innlent »
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 12. júní 2010, Innlent Hanna Birna býður sig ekki fram
- Þriðjudagur, 15. júní 2010, Innlent Hefði viljað sitja lengur
- Sunnudagur, 13. júní 2010, Innlent Hanna Birna hefur ekki tekið ákvörðun
- Sunnudagur, 30. maí 2010, Innlent Hanna Birna ekki á leið í formannsframboð
- Miðvikudagur, 1. desember 2010, Innlent Mikil vonbrigði með samstarfið
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































