Már og Jóhanna ræddu um launin
Már Guðmundsson seðlabankastjóri átti í beinum tölvupóstsamskiptum við Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í júní í fyrra, um væntanleg launakjör sín, áður en hann var skipaður seðlabankastjóri. Stuttu áður en hann var skipaður í embættið sagði hann í tölvupósti til Jóhönnu að 37% launalækkun væri líkleg til að valda því að hann hætti við umsókn sína, en að hann bindi vonir við að hún fyndi lausn á því máli.
Þetta kemur fram í tölvupóstsamskiptum Más við forsætisráðuneytið, sem Morgunblaðið hefur fengið aðgang að, að hluta.
Í tölvubréfi til Jóhönnu, dagsettu 21. júní 2009 segir Már. „Opinber kjör fela auðvitað í sér mjög mikla tekjulækkun frá því sem ég bý við í núverandi starfi. Mér er einnig ljóst að til viðbótar gæti komið lækkun ráðstöfunartekna vegna almennra aðgerða stjórnvalda í skattamálum og því um líku. Ég er hins vegar tilbúinn til að sætta mig við það."
Afrit af bréfinu var einnig sent á Láru V. Júlíusdóttur, formann bankaráðs Seðlabankans og Ragnhildi Arnljótsdóttur, ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu.
Í bréfinu segir Már að komi til þess að laun seðlabankastjóra verði lækkuð um allt að 37% muni hann þurfa að fara yfir ákvörðun sína og miklar líkur séu á því að hún breytist. Í bréfinu virðist hann vísa í eitthvert fyrra samtal sitt við Jóhönnu.
„Þá vil ég nefna það sem mér láðist að geta í samtalinu. Ráðningarferli seðlabankastjóra hefur sem betur fer farið fram fyrir opnum tjöldum. Það hefur hins vegar þær afleiðingar að hinn alþjóðlegi seðlabankaheimur er vel upplýstur um það. Í aðdraganda umsóknar minnar komu ýmsir þeirra að máli við mig og sumir lögðu beinlínis hart að mér að sækja um," segir Már.
Eftir að listi umsækjenda hafi verið kynntur hafi mun fleiri talað við hann og lýst yfir ánægju með að hann væri þeirra á meðal. „Það verður að sumu leyti erfitt fyrir mig að útskýra það ef til þess kemur að ég dreg mig til baka. Það yrði hins vegar óhjákvæmilegt vegna orðspors míns í seðlabankaheiminum að gera það," segir Már enn fremur í bréfinu.
„Ég vona að til þess komi ekki, enda ekki víst að þeir eigi auðvelt með að skilja hvernig hægt er að breyta kjörum seðlabankastjóra stórlega í miðju umsóknarferli.
Ég býst við að heyra frá þér á morgun eða þriðjudag og bind vonir við að þú finnir einhverja viðunandi lausn á þessu erfiða máli," segir hann.
Þremur dögum síðar, 24. júní 2009, sendi Lára V. Júlíusdóttir, formaður bankaráðs Seðlabankans, tölvubréf til Ragnhildar Arnljótsdóttur ráðuneytisstjóra, en bréfinu fylgdu drög að tillögu um starfskjör bankastjóra. Í bréfinu segir Lára:
„Sæl Ragnhildur.
Eftir að hafa ráðfært mig við starfsmannastjóra bankans [...] sendi ég ykkur hjálagða tillögu. Hér er allt tekið til og reynt að hafa hlutina einfalda.
Auðvelt er að rökstyðja að formaður peningastefnunefndar skuli fá greitt sérstaklega fyrir þá vinnu alla, þannig að svona er þetta mun heppilegra heldur en að fara að greiða aftur fyrir setu í bankaráðinu."
26. júní var Má svo send tilkynning frá forsætisráðuneytinu þar sem honum var tilkynnt með vísan til laga að hann hefði verið skipaður seðlabankastjóri til fimm ára frá 25. ágúst.
Bloggað um fréttina
-
Guðrún María Óskarsdóttir. Sápuópera Samfylkingar um launakjör Seðlabankastjóra. -
Magnús Jónsson Jóhann sagðist ekkert vita??? -
Jóhannes Ragnarsson Skólprottur telja Jóhönnu lygalaup -
Magnús Þór Hafsteinsson Stutt leit í ræðusafni þingsins... -
Flosi Kristjánsson Val á samskiptamáta -
Sigurður Haraldsson Hættu! -
Sigurður Jónsson Jæja Jóhanna verkstjóri Vinstri stjórnar, hvað nú? Það eina í ... -
Kristbjörn Árnason Ólæsir bloggarar -
-
Guðmundur Eyjólfur Jóelsson Úlfaldi úr mýflugu? -
Þórarinn Þ Gíslason ÞAÐ ER EINMITT SVONA LANGLOKUR SEM AÐ EYÐILEGGJA ORÐSPOR ÞINGMANNA. -
Anna Sigríður Guðmundsdóttir Jóhanna blessunin er bara notuð! -
Páll Vilhjálmsson Jóhanna staðin að ósannindum -
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir Ljótt mál. -
-
Þórkatla Snæbjörnsdóttir Hættu Jóhanna! -
Sigurbjörg Eiríksdóttir Tær snilld -
Jón Baldur L'Orange Var þetta ,,fjárkúgun"? -
Haraldur Haraldsson Már og Jóhanna ræddu launin/þýðir þetta ekki afsögn hennar????? -
Hrafn Arnarson Morgunblaðið og tölvupóstarnir. -
Óðinn Þórisson Jóhanna mun EKKI segja af sér -
Bjarni Valur Jarðar þetta mál ekki Samfylkinguna endanlega? -
Axel Jóhann Axelsson Jóhanna laug blákalt um launaloforðið til Más -
Stefán Friðrik Stefánsson Jóhanna laug að þingi og þjóð -
Viggó Jörgensson Jóhanna segir af sér... -
Ólafur Jóhannsson Spillingin enn við lýði -
Baldur Gautur Baldursson Hjálp hvað sumir geta verið drjúgir! -
Å s d ì s Sig Jóhanna vissi þá ekki neitt, eða hvað ??? -
Heimir L Fjeldsted Upp kemst um lygar og ferillinn búinn -
Svanur Gísli Þorkelsson Illskeytt en misheppnuð tilraun til að koma höggi á Jóhönnu -
Guðmundur Jónas Kristjánsson Jóhanna laug að Alþingi Íslendinga. Afsögn blasir við! -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Merkikerti -
Magnús Helgi Björgvinsson Ég er búinn að lesa þessa frétt og sé nú ... -
Gunnar Heiðarsson Lygar Jóhönnu staðfestar
Innlent »
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 6. júní 2010, Innlent „Ræddi ekki launamálin“
- Sunnudagur, 6. júní 2010, Innlent Ræddi ekki beint við Jóhönnu
- Föstudagur, 21. maí 2010, Innlent Embættismenn á nefndarfund
- Mánudagur, 7. júní 2010, Innlent „Ekki í mínum verkahring"
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá





































