Byggða- og atvinnumál í brennidepli í Brussel
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra átti í dag viðræður við Hubert Gambs ráðuneytisstjóra byggðamála hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í Brussel. Rætt var um aðildarumsókn Íslands og möguleika í nýsköpunar- og atvinnuþróunarmálum á Íslandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu.
Þar segir að ráðherra hafi einnig átt fund með Per Sanderud framkvæmdastjóra ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, og Per Andreas Bjørgan skrifstofustjóra í samkeppnis- og ríkisaðstoðardeild ESA, m.a um fjárfestingarsamninga og ný rammalög um ívilnanir vegna fjárfestinga á Íslandi sem nú eru til umfjöllunar á Alþingi.
Þá tók iðnaðarráðherra í morgun þátt í kynningu á vegum Útflutningsráðs og Ferðamálastofu í Brussel á stöðu ferðamála á Íslandi fyrir 30 blaðamenn og fulltrúa ferðaheildsala í Belgíu.
Ráðherra ræddi einnig við fjölmiðla að lokinni kynningu. Á fundinum flutti Rikke Pedersen forstöðumaður Norræna eldfjallasetursins ítarlegt erindi um gos í Eyjafjallajökli og eldfjallarannsóknir á Íslandi.
Þá gerði Davíð Jóhannsson Evrópufulltrúi Ferðamálastofu grein fyrir átakinu Inspired by Iceland. Allir viðstaddir fengu ösku úr Eyjafjallajökli í gjafapakkningum. Ferðamönnum frá Belgíu til Íslands hefur farið fjölgandi síðustu ár og benda bókanir í beint flug Icelandair frá Brussel til Keflavíkur, sem hófst síðastliðinn laugardag, til þess að áframhald verði á þeirri þróun.
Innlent »
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 13. apríl 2010, Innlent Iðnaðarráðuneytið styður Heilsulandið Ísland
- Föstudagur, 18. júní 2010, Innlent Iðnaðarráðherra í Sjanghaí
- Þriðjudagur, 8. júní 2010, Innlent Samþykktu með semingi
- Mánudagur, 1. mars 2010, Innlent Atvinnumálin rædd á Suðurnesjum
- Mánudagur, 23. maí 2011, Innlent Ræða viðbrögð við gosinu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































