Jóhanna: „Pólitískt áhlaup á mig"

Jóhanna Sigurðardóttir
Jóhanna Sigurðardóttir Ómar Óskarsson

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ítrekaði í viðtali í Kastljósi Sjónvarps í kvöld að hún hefði hvergi komið nærri ákvörðunum um laun Más Guðmundssonar seðlabankastjóra. Jóhanna sagði kjarna málsins þann að verið væri að gera pólitískt áhlaup á hana sem ráðherra.

„Það hefur aldrei nokkurn tíma að því er ég best veit verið staðið eins faglega að ráðningu og í tilfelli Más Guðmundssonar seðlabankastjóra," sagði Jóhanna. Hún sagðist hafa sagt allan sannleikann í málinu eins og hann snýr að henni og hún hafi ekki haft nein afskipti af launamálunum.

Jóhanna vildi ekki taka undir þau orð Sigmars Guðmundssonar að reynt hafi verið að fara fram hjá lögum kjararáðs. Hinsvegar samþykkti hún að ekki væri eðlilegt ef Már Guðmundsson hefði reynt að koma með ábendingar um hvernig hægt væri að komast hjá lögunum þannig að hann fengi hærri laun. „Það er auðvitað ekki eðlilegt, hann á að taka þeim launakjörum sem eru í boði og það er kjararáð sem ákveður það [...] En hann er auðvitað að lýsa áhyggjum sínum og mér var alveg ljóst að Már hafði áhyggjur af sínum launakjörum, af því hann var að lækka verulega í launum og hann greindi mér frá því. En honum var jafnljóst og ég gerði honum fullkomlega grein fyrir því að ég myndi ekki hafa afskipti af hans málum á neinu stigi."

Jóhanna ítrekaði að breytingar sem gerðar voru á lögum um kjararáð hafi á engu stigi málsins verið bornar undir hana og hún telji að ekki sé hægt að nota þá lagabreytingu til að hækka laun Más Guðmundssonar. „Bankaráð verður að skýra það sjálft ef verið er að nota einhverja lagabreytingu til að hækka laun Más um 400 þúsund. Ég skil ekki hvernig hún getur gert það."

Aðspurð hvort hún bæri ekki engu að síður ábyrgð á þessu „klúðurslega máli" sagði Jóhanna augljóst að verið væri að gera pólitískt áhlaup á hana sem ráðherra. Ótrúlegt væri að þingmenn „taki þátt í þessum hasar með Davíð Oddssyni" sem legði hana í einelti. „Að það sé hægt að blása þetta mál svona upp er makalaust, ég hef komið fram af fullkominni hreinskilni gagnvart afskiptum mínum af þessu máli, það eru aðrir menn að reyna að gera mig tortryggilega [...] Það er fyrst og fremst kjarninn í þess að það er verið að reyna að gera mig tortryggilega að undirlagi Morgunblaðsritstjóra og allir vita hvernig hann fór úr Seðlabankanum."

Jóhanna sagðist jafnframt ekki geta tekið undir það að stjórnsýslan sé í molum. Hinsvegar telji hún óhæft að ráðningarmál séu í höndum ráðherra og styðji heilshugar breytingu á því sem nú liggi fyrir. „Við sjáum nú hvernig seðlabankastjórar hafa verið ráðnir í gegnum tíðina. Það er þetta sem við þurfum að taka í gegn [...] Þeir sem eru að saka mig um spillingu ættu að horfa í eigin barm því þeir eru siðferðislega sjálfir sumir á gráu svæði."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert