Ekki minni sala áfengis síðan 2006

Sala á áfengi hefur dregist saman á árinu.
Sala á áfengi hefur dregist saman á árinu. mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Sala áfengis í Vínbúðum ÁTVR dróst saman um 10% í lítrum talið fyrstu fimm mánuði þessa árs miðað við sama tíma í fyrra.

Ef salan í maí er borin saman við sama mánuð í fyrra er samdrátturinn hins vegar tæplega 17%.

Á heimasíðu Vínbúðanna segir að hluti skýringarinnar á þessum samdrætti sé að 1. júní 2009 hafi skattar á áfengi hækkað sem hafi skilað sér í aukinni sölu síðustu dagana í maí það árið. Þar kemur einnig fram að sala á áfengi hafi ekki verið minni í maímánuði síðan árið 2006.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert