Frysting yrði hlé á skerðingu

Guðlaug Kristjánsdóttir stækka

Guðlaug Kristjánsdóttir mbl.is

Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM, segir að ákall Árna Páls Árnasonar, félags- og tryggingamálaráðherra eftir þjóðarsátt um að laun hjá hinu opinbera verði fryst til ársloka 2013, komi sér ekki á óvart. 

„Þetta eru ekki nýjar fréttir og við erum svo sem búin að heyra þessa hugmynd áður. Við hjá BHM erum búin að vera samningslaus í á annað ár og launin okkar hafa ekkert hreyfst nema niður. Þannig að að vissu leyti mætti segja að frysting væri hlé á þeim beinu kjaraskerðingum við höfum orðið fyrir,“ segir Guðlaug. Bendir hún á að nýleg kjarakönnun félagsins hafi leitt í ljós að 70% félagsmanna BHM hafi frá upphafi árs 2009 staðið í stað launalega eða lækkað hvort heldur sem er á opinbera eða almenna vinnumarkaðnum.

Spurð hvort hún telji útspil ráðherra nú tengjast þeirri ákvörðun forsvarsmanna BHM að segja sig frá stöðugleikasáttmálanum svarar Guðlaug því neitandi og telur hugmynd ráðherra var partur af því umhverfi sem blasi við í niðurskurðinum. 

„Upphaflega var nú lagt af stað með að vernda störfin eins og hægt væri. Það loforð er svolítið farið að dala. Það var vitað frá upphafi Alþjóðagjaldeyrissjóðsáætlunarinnar að þar væri verið að tala um 20% minna umfang hins opinbera og launakostnaður er þar einn stærsti útgjaldaliðurinn,“  segir Guðlaug.

Spurð hvort hún telji að frysting launa hjá hinu opinbera geti leitt til verkfalla og þess að vinnumarkaðurinn logi í illdeilum segir Guðlaug það allt fara eftir því hver verði næsti skref ríkisstjórnarinnar. 

„Ríkisstjórnin þarf að sýna trúverðugleika í því sem hún er að gera, að það sé einhver heildstæð áætlun í gangi. Ef sú leið er skýr og ef aðferðirnar eru trúverðugar þá eru meiri líkur á því að starfsmenn hins opinbera taki þátt. En ef þetta verður eitthvað tilviljunarkennt og ómarkvisst þá mega þeir passa sig á stemningunni sem myndast getur,“  segir Guðlaug. 


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »
Hera Björk - Evróvisjónfari ´10

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Honda Shadow 125cc árg 2007.
Til sölu Honda Shadow 125 cc árg 2007 , ekið aðeins 900 km, lítur út eins og ...
Burðarpokar og burðarsjöl www.hondihond.is
Fullt hús af burðarpokum og burðarsjölum. Henta vel fyrir börn frá 0-3 ára. O...
125 cc PitBike
Til sölu lítið notað X-motos PitBike árg. 2008. verð 70 þús! Baldur 848-6972...
Landskiki óskast
Óska eftir 2-20 ha landskika við sjó,á eða vatn með leyfi fyrir 2 heilsárshús í ...
 
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Bl atvinnuaugl
Önnur störf
HYUNDAI FLYTUR Í NÝJA OG GLÆSILEGA FRAMT...
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
Bæjarlögmaður
Sérfræðistörf
Bæjarlögmaður Kópavogsbær auglýsir stö...