Allrahanda fær bætur frá ríkinu
Íslenska ríkið var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmt til að greiða Iceland Excursion Allrahanda ehf. 1.134.006 krónur auk dráttarvaxta vegna kostnaðar sem félagið hafði lagt í vegna markaðssetningar sem nýttist ekki vegna úthlutunar á sérleyfisakstri á Vestfjörðum árið 1997.
Ríkið var hins vegar sýknað af kröfu Allrahanda vegna tjóns sem fyrirtækið taldi sig hafa orðið fyrir við úthlutun sérleyfis á Vestfjörðum af hálfu samgönguráðuneytisins.
Allrahanda hf. sótti um og fékk úthlutað sérleyfi til fólksflutninga með langferðabifreiðum á sérleyfisleiðunum Þingeyri - Ísafjörður – Þingeyri og Ísafjörður – Hólmavík frá 20. mars 1992 til 1. mars 1995. Leyfið var framlengt um tvö ár, til 23. febrúar 1997, og aftur frá 1. mars 1997 til 1. september sama ár.
Með bréfi 1. september s.á. veitti samgönguráðuneytið Ísafjarðarbæ sérleyfi á leiðinni Ísafjörður – Suðureyri – Flateyri – Þingeyri frá þeim degi til 1. september 1998. Allrahanda hf. sótti einnig um sérleyfið en nafni þess hafði þá verið breytt í Allrahanda/Ísferðir ehf. Eftir þetta samdi Ísafjarðarbær við Allrahanda/Ísferðir ehf. um að félagið tæki að sér akstur á sérleyfisleiðinni á tímabilinu 27. september 1997 til 31. ágúst 1998. Samgönguráðuneytið veitti Ísafjarðarbæ einkaleyfi til fólksflutninga innan sveitarfélagsins á árinu 1998. Eftir það var samið við annan um aksturinn.
Allrahanda/Ísferðir ehf. höfðaði skaðabótamál á hendur íslenska ríkinu árið 2001 þar sem byggt var á því að ríkið hefði með saknæmum og ólögmætum hætti veitt Ísafjarðarbæ umrætt sérleyfi. Bæri íslenska ríkinu að bæta Allrahanda tjónið sem það hefði orðið fyrir af þeim sökum. Málinu var vísað frá dómi með úrskurði 27. júní 2003 sem staðfestur var með dómi Hæstaréttar 1. september s.á.
Allrahanda höfðaði aftur mál á hendur íslenska ríkinu 27. febrúar 2004 vegna sama sakarefnis og gekk dómur um það 10. október 2005 þar sem Allrahanda voru dæmdar skaðabætur að álitum. Málinu var áfrýjað og varð niðurstaða Hæstaréttar 28. september 2006 sú að vísa bæri málinu frá héraðsdómi.
Innlent »
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 6. júlí 2011, Innlent Kostnaður við Sæfara eykst
- Mánudagur, 6. júní 2011, Innlent Ríkið ekki skaðabótaskylt
- Föstudagur, 19. júní 2009, Innlent Landsvirkjun og ríkið gera viðbúnaðarsamning
- Mánudagur, 28. september 2009, Innlent Dæmdir í 8 og 10 ára fangelsi
- Þriðjudagur, 3. nóvember 2009, Innlent Dómari víkur sæti
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































