Gert að greiða kúlulán

Félag í eigu Jakobs Valgeirs Flosasonar þarf að greiða Landsbankanum ríflega tveggja milljarða króna kúlulán stækka

Félag í eigu Jakobs Valgeirs Flosasonar þarf að greiða Landsbankanum ríflega tveggja milljarða króna kúlulán mbl.is/Árni Sæberg

Félagi í eigu útgerðarmannsins Jakobs Valgeirs Flosasonar, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag gert að greiða Landsbankanum 17.923.930 svissneska franka, rúma tvo milljarða króna, kúlulán ásamt dráttarvöxtum. Lánið var nýtt í hlutabréfakaup á sínum tíma en ekkert hafði verið greitt af láninu.

Jakob Valgeir var hins vegar sýknaður af sjálfskuldaábyrgð þar sem það þótti sannað með vitnisburði starfsmanns bankans að sjálfskuldaábyrgð eiganda hefði fallið niður.

Hinn 17. júlí 2007 lánaði Landsbanki Íslands  Áli ehf., svokallað fjölmyntalán að jafnvirði 600.000.000 króna í svissneskum frönkum.  Samið var um að lánið skyldi vera til tveggja ára og greiðast „að fullu á næstu 2 árum með einni afborgun í lok lánstímans þann 10.07.2009.  Vexti bæri að greiða á tólfmánaða fresti út lánstímann í fyrsta sinn þann 10.07.2008.

Þá var samið um að Áll greiddi bankanum breytilega vexti jafnháa LIBOR vöxtum í samræmi við lengd vaxtatímabils hverju sinni, auk 1,95% vaxtaálags.  Í samningnum segir að til tryggingar skilvísri og skaðlausri greiðslu allra lánshluta samkvæmt lánssamningnum hafi Áll  sett bankanum að handveði hlutabréf í Jakobi Valgeiri ehf. að nafnvirði kr. 17.494.865,- með útgáfu handveðsyfirlýsingu. Þá segir í samningi að til tryggingar skilvísri og skaðlausri greiðslu allra lánshluta samnings þess „tekst Jakob Valgeir Flosasoná hendur sjálfskuldarábyrgð á fullum efndum allra skuldbindinga skv. samningi þessum“. 

Jakob Valgeir Flosason undirritaði samninginn fyrir hönd Áls ehf. og samþykki sitt sem sjálfskuldarábyrgðaraðili hinn 17. júlí 2007.

Hinn 17. ágúst 2007 lánaði Landsbanki Áli  enn svokallað fjölmyntalán að jafnvirði 5.000.000 svissneskra franka.  Samið var um að lánið skyldi vera með sömu kjörum og hið fyrra og sömu veð lögð fyrir láninu.

Landsbankinn, byggði sína kröfu á hendur Áli og Jakobi að  Áll ehf., hafi ekki greitt lánin, hvorki á gjalddaga né síðar. 

Áll ehf., byggði hins vegar mál sitt á því að fyrsta lánið hafi verið veitt í íslenskum krónum.  Nánast samhljóða lánasamningur, það er seinni samningurinn, tilgreini lánið í svissneskum frönkum. 

  Óháð þessu þá hélt lögmaður Áls því fram að samningunum beri að víkja til hliðar í heild eða að hluta vegna brostinna forsendna.  Forráðamenn félagsins hafi hvorki getað gert ráð fyrir né séð fyrir að krónan félli eins mikið og raun varð.  Þeir hefðu mátt búast við sveiflum á gengi krónunnar en ekki að þeirri stærð sem varð.  

Jakob Valgeir kvaðst einungis hafa grunnskólamenntun

Jakob Valgeir Flosason hélt því fram að Landsbankanum hafi orðið á mistök við gerð lánasamnings. Starfsmaður bankans hafi viðurkennt það í  tölvupósti til lögmanns Jakobs Valgeirs.

Jakob Valgeir bar því við fyrir dómi að hann væri einungis með grunnskólamenntun.  Hann hafi ekki lesið lánasamningana yfir heldu bara treyst að þeir væru „settir rétt upp“.  Hann hafi treyst því að bankinn stæði rétt að þessu.  Hann hafi treyst því að þegar bankinn tæki veð í hlutabréfunum félli sjálfskuldaábyrgð hans niður.  Honum hafi ekki verið ljóst fyrr en ári síðar að af hálfu bankans væri talið að hann bæri enn sjálfskuldaábyrgð á lánunum.  Honum hafi þó síðar verið tjáð að þetta væru mistök bankans, mistök í skjalagerð.

Ætlað til að kaupa hin og þessi hlutabréf

Þegar hann tók lánin kvaðst Jakob Valgeir eingöngu hafa haft samband við ákveðinn starfsmann hjá bankanum.  Jakob Valgeir kvaðst hafa ætlað að nota peningana, sem teknir voru að láni, til að kaupa hin og þessi hlutabréf, einnig í aðrar fjárfestingar og það hafi hann gert.  Rætt hafi verið um að hann tæki á sig sjálfskuldaábyrgð á meðan gengið yrði frá veðsetningu bréfanna.  Hann hafi fallist á sjálfskuldaábyrgð þar til heimild til veðsetningar bréfanna bærist.  Þetta hafi hann gert til að fá lánið strax greitt út.

 Jakob Valgeir sagði að í fyrra tilvikinu hafi verið sett að veði hlutabréf, að nafnvirði 17.494.865 kr. í Jakobi Valgeiri ehf.  Í síðara tilvikinu hafi verið sett að veði hlutabréf, að nafnvirði 3.731.615 kr. í Jakobi Valgeiri hf., og hafi hann ráðstafað fénu til að kaupa fleiri bréf í félaginu.

 Í niðurstöðu héraðsdóms segir að allt bendi til þess að mistök hafi orðið við frágang lánsins og því beri að sýkna Jakob Valgeir af sjálfskuldaábyrgð eiganda.

Áttu ekki von á svo miklu falli krónunnar

Áll byggði á því að lánssamningarnir, sem hér um ræðir, séu ekki skuldbindandi, eða að víkja beri þeim til hliðar í heild eða að hluta til vegna brostinna forsendna.  Í fyrsta lagi er vísað til þess Áll ehf. hafi ekki gert ráð fyrir né séð fyrir að krónan félli eins mikið og raun bar vitni.  Félagið hafi mátt búast við einhverjum sveiflum á gengi krónunnar, en ekki eins miklum og urðu.  Í öðru lagi hafi bankanum hlotið að vera kunnugt um að mikilvægt var fyrir Ál ehf. að krónan félli ekki eins mikið og hún gerði. 

„Í þriðja lagi að ósanngjarnt sé að Áll ehf. „beri einn allan hallann af falli íslensku krónunnar sérstaklega í ljósi framferðis bankans á gjaldeyrismarkaðnum síðasta árið fyrir hrun.  Það er ekki sanngjarnt að stefnandi hafi verið að lána í erlendri mynt á meðan hann var að stunda markaðsmisnotkun með gjaldmiðla í aðdraganda hrunsins.“

Ekki á valdi Landsbankans að stöðva fall krónunnar

Dómarinn fellst hins vegar ekki á þann rökstuðning forsvarsmanns Áls að hann hafi ekki búist við því að krónan félli eins mikið og hún gerði og að forsvarsmönnum bankans hafi verið kunnugt um að mikilvægt væri fyrir félagið að krónan félli ekki eins mikið og hún gerði, verður það ekki talið ósanngjarnt eða andstætt góðri viðskiptavenju að bankinn byggir á samningum aðila. 

Svo virðist af gögnum málsins að forsvarsmaður bankans í viðskiptunum við Ál ehf. hafi á engan hátt ætlað að hlunnfara félagið heldur sýnt félaginu fullan trúnað.  Ekki var á valdi Landsbanka Íslands hf. að stöðva fall íslensku krónunnar og ósannað er að bankinn hafi stundað markaðsmisnotkun á gjaldeyrismarkaði líkt og forsvarsmaður Áls hélt fram.

Jakob Valgeir var stjórnarformaður Stíms efh.

Jakob Valgeir greiddi hæstu opinberu gjöldin í umdæmi skattstjóra Vestfjarðaumdæmis á síðasta ári, rúmar 34,4 milljónir króna.

Jakob Valgeir var stjórnarformaður Stím ehf. en félagið var sett sérstaklega á fót til að kaupa bréf í Glitni og FL Group, stærsta eiganda Glitnis, fyrir tæpa 24,8 milljarða króna í nóvember 2007. Seljandi bréfanna var Glitnir sjálfur, sem lánaði Stím einnig 19,6 milljarða króna til kaupanna.

Fons stofnaði FS37 en breytti nafni síðar í Stím

23. október 2007 var félagið FS37 stofnað en það var í eigu Fons, félags þeirra Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristjánssonar. 14. nóvember keypti FS37 hlutabréf í Glitni og FL Group af Glitni fyrir 24,8 milljarða. FS38 og Glitnir lánaðu FS37 90 prósent af kaupverðinu. 16. nóvember var haldinn hluthafafundur í FS38 þar sem stjórn félagsins er kosin. Sama dag er nafni FS37 ehf. breytt í Stím ehf.

Samkvæmt lánabók Glitnis, sem birt var í Morgunblaðinu árið 2008 var Stím þriðji stærsti skuldari fyrirtækjasviðs Glitnis í lok árs 2007. Einu aðilarnir sem skulduðu meira voru FL Group (26,6 milljarðar), stærsti eigandi Glitnis á þeim tíma, og Exista(22,8 milljarðar), stærsti eigandi Kaupþings. Fons, sem átti upphaflega Stím, var í fimmta sæti með lánveitingar upp á 15,3 milljarða króna. 


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Verði drögin samþykkt orðrétt er ljóst að trúar- og lífsskoðunarfélög fá ekki að stunda starfsemi ...

Reglur ræddar í Hafnarfirði

14:07 Drög að reglum um samskipti leik- og grunnskóla við trúar- og lífsskoðunarfélög voru lögð fyrir fræðsluráð Hafnarfjarðar fyrr í vikunni. Drögin eru samljóma reglum sem samþykktar voru í Reykjavík, og segir í þeim að trúarleg innræting og boðun tiltekinna lífsskoðana eigi ekki heima í skólum. Meira »
Spilakassar.

Rán framið á Akureyri

14:02 Rán var framið á spilastað Gullnámunnar við Geislagötu á Akureyri um hádegisbil í dag. Þetta staðfesti lögreglan á Akureyri en varðist að öðru leyti allra frétta af málinu. Meira »

WOW air notar Airbus-vélar

Önnur véla WOW er merkt Wow Force One.
14:01 WOW air undirbýr sig nú fyrir komandi sumar en félagið mun hefja áætlunarflug til 13 áfangastaða í Evrópu í júní. Flugfloti WOW air samanstendur af tveimur Airbus A320 168 sæta flugvélum. Vélarnar eru leigðar frá félaginu Avion Express. Önnur vélin er merkt WOW Force One með fjólubláum stöfum sem er einkennislitur WOW air. Meira »

Draga hækkun til baka

Frá Patreksfirði.
13:26 Bæjarráð Vesturbyggðar hefur samþykkt að draga til baka hækkun á leikskólagjöldum sem sett var á um áramótin og fella niður innritunargjald í félagsstarfi aldraðra. Meira »

Klára málið í næstu viku

Valgerður Bjarnadóttir formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
13:11 Ef Alþingi vísar máli gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, frá verða gögn sem safnað hefur verið saman vegna málshöfðunarinnar send á Þjóðskjalasafnið til varðveislu. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd reiknar með að afgreiða tillögu um afturköllun málsmeðferðar í næstu viku. Meira »

Skoði betur kaflann um forsetann

Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis.
13:34 Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis ætlar að senda stjórnlagaráði, sem kemur saman 8. mars, nokkrar spurningar sem hún vill að ráðið ræði. Ein af þeim er varðandi stöðu forseta Íslands. Meira »

Gagnrýnir skamman fyrirvara

Örn Bárður Jónsson, prestur og fyrrverandi fulltrúi í stjórnlagaráði.
13:18 „Ég gerði mér vonir um að Alþingi færi rækilega yfir þessar tillögur og skrifaði síðan um þær álit. Ég gerði hins vegar alveg eins ráð fyrir því að hópurinn yrði kallaður saman til skrafs og ráðagerða,“ segir Örn Bárður Jónsson, prestur og einn fulltrúa í stjórnlagaráði. Meira »

Segir rangt farið með málsatvik

Jón Baldvin Hannibalsson.
13:11 Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra segir að ekki sé rétt farið með málsatvik í umfjöllun í Nýju lífi þegar því er haldið fram að hann hafi átt samskipti við vændiskonur er hann var í opinberum erindagjörðum í Tallin. Meira »

Börn og unglingar í óhamingjugildru

12:32 Það er ekki nóg að tækifærin séu til, einstaklingurinn þarf að hafa hvata til þess að sjá þá möguleika sem hann hefur á að nýta sér þau,“ segir dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf og formaður stjórnar RBF, Rannsóknarstofnunnar í barna- og fjölskylduvernd við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands. Meira »

Baðst afsökunar fyrir 12 árum

Jón Baldvin Hannibalsson.
12:17 „Ég hef ekki séð blaðið og veit ekki hvað stendur í því,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra, um umfjöllun í Nýju lífi þar sem systurdóttir eiginkonu hans segir frá bréfum sem hann sendi henni er hún var á unglingsaldri. Meira »

Afgreiðsla ekki í samræmi við lög

12:27 Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að skilyrði ríkissaksóknara um að tilgreina beri ástæður þess að óskað sé eftir gögnum í máli sem er lokið, eigi sér ekki stoð í lögum. Er þeim tilmælum beint til embættisins að það endurskoði ákvæði þess efnis. Meira »

Hundarnir finna dópið strax myndskeið

230212 logguhundar
12:00 Undanfarnar þrjár vikur hafa hundar verið í strangri þjálfun í Lögregluskólanum. MBL Sjónvarp fylgdist með einu lokaprófinu þegar þeir leituðu að fíkniefnum sem komið hafði verið fyrir í æfinga-íbúð skólans. Hundarnir nýtast þó til fleiri verka en niðurskurður hefur verið í hundahaldi lögreglunnar. Meira »

Ummerki um olíu frá Júratímabilinu

Drekasvæðið.
11:54 Nýjar rannsóknir á Drekasvæðinu sýna ummerki um olíu frá Júratímabilinu á hafsbotni og staðfesta tilvist jarðlaga frá miðlífsöld. Þetta kemur fram í frétt á vef Orkustofnunar. Meira »

D-vítamínbætt mjólk á markað

D-vítamínbætt léttmjólk.
11:44 Mjólkursamsalan, MS, hefur á næstu dögum sölu á D-vítamínbættri léttmjólk. Er það gert samkvæmt ráðleggingum Embættis landlæknis og rannsóknastofu í næringarfræði við HÍ og Landspítala. Meira »

Unnur Brá: Eina lausnin?

Unnur Brá Konráðsdóttir
11:33 „Svo virðist sem forsætisráðherra hafi aðeins eitt svar við öllum spurningum og eina lausn á öllum vanda, það er að Ísland gangi í ESB og taki upp evru", segir Unnur Brá Konráðsdóttir, alþingismaður, í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Gerir alvarlegar athugasemdir

Salvör Nordal, fyrrverandi formaður stjórnlagaráðs.
11:52 Fram koma alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá í bréfi fyrrverandi formanns ráðsins, Salvarar Nordal, til forsætisnefndar þingsins í kjölfar þess að samþykkt var á Alþingi í gær að vísa málinu til ráðsins á ný. Meira »

Telja neytendur eiga betri rétt

11:36 Hagsmunasamtök heimilanna áttu fund með efnahags- og viðskiptanefnd í gær þar sem rætt var um nýfallinn Hæstaréttardóm um gengistryggð lán. Leggja samtökin til að Samtök fjármálafyrirtækja verði leyst upp með tilliti til þess að þar væri um grundvöll fyrir óheilbrigðan og skaðlegan samráðsvettvang. Meira »

Tæplega helmingur ók of hratt

Hraðamælingar lögreglu.
11:31 Tæplega helmingur ökumanna sem fór um Suðurgötu í Reykjavík á einni klukkustund eftir hádegið í gær ók of hratt eða yfir afskiptahraða. Á meðan lögregla vaktaði götuna fóru 122 ökutæki akstursleiðina og 48% þeirra voru á of mikilli ferð. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Mitsubishi Galant (ES
Mitsubishi Galant (ES) 2001 árgerð Ekinn ca 109500 mílur (176þús km) Slagrými...
STRANDAMANNABÓK & ÁBÚENDATAL SKAGAFJ.S. 1781 ...
Til sölu Strandamannabók eftir Pétur Jónsson frá Stökkum, 1947, hreppalýsing o...
FLOTTIR DÖMUSKÓR
Teg. 7422 - Flottir dömuskór úr leðri, skinnfóðra...
Glæsilegt heilsárshús til leigu
Glæsilegt sumarhús til leigu 11 km frá Borgarnesi. Allt til alls, heitur pottur...
 
Borun á vinnsluhola í hrolleifsdal

Útboð á borun vinnsluholu fyrir Ska...
Prentsmiður/grafískur miðlari - offset-prentari
Iðnaðarmenn
FagFólk óskast til framtíðarstarfa ...
Starfsfólk óskast
Ræstingar
Starfsfólk óskast Hreint ehf. óskar efti...
Hugbúnaðarsérfræðingur
Tölvur/upplýsingatækni
...