Fær 50 milljónir í bætur

Laugardalslaug. stækka

Laugardalslaug. ODD STEFAN

 Vátryggingafélag Íslands var í Hæstarétti í dag gert að greiða pólskum karlmanni sem slasaðist alvarlega er hann stakk sér í Laugardalslaugina fyrir þremur árum tæpar 50 milljónir króna auk vaxta frá árinu 2007 í skaðabætur vegna slyssins. Eru þetta mun hærri bætur en héraðsdómur hafði dæmt tryggingafélagið til að greiða.

Er örorka mannsins metin 100% og að öllum líkindum verður hann upp á aðra kominn um alla ævi vegna skertrar starfsemi í handleggjum og höndum. Maðurinn hefur notið hjálpar bróður síns og vinar þeirra, en óvíst er hve lengi það getur orðið. Aðstæður hans eru mjög óvenjulegar þar sem hann á ekki aðra að hér á landi, að því er segir í niðurstöðu Hæstaréttar.

Óvarkárni sú, er hann sýndi í aðdraganda slyssins og leiðir til þess eftir almennum reglum skaðabótaréttar að hann er meðábyrgur að tjóni sínu, telst óveruleg en hann stakk sér af grynnri enda laugarinnar.

Saknæmi Reykjavíkurborgar, eiganda laugarinnar, felst í því að ekki var farið eftir fyrirmælum í reglugerð um greinilegar merkingar, sem þó átti að vera auðvelt án mikils kostnaðar.


Maðurinn slasaðist þegar hann stakk sér til sunds frá grynnri enda sundlaugarinnar í Laugardal, með þeim afleiðingum að hann rak höfuðið í botn laugarinnar og hlaut alvarlegan skaða af. p> VÍS hafnaði skaðabótakröfu mannsins á sínum tíma þar sem félagið taldi að slysið yrði ekki rakið til saknæmrar háttsemi starfsmanna sundlaugarinnar heldur til óaðgæslu mannsins sjálfs.

Voru manninum dæmdar bætur í héraðsdómi en þær voru hækkaðar úr rúmum 33 milljónum króna þá í tæpar 50 milljónir nú.

Í dómi Hæstaréttar kemur fram að merkingar um dýpi og um að dýfingar væru bannaðar hefðu ekki verið greinilegar og því væri ekki fullnægt fyrirmælum reglugerðar um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Fram kemur að sérstaklega væri brýnt að merkingar væru skýrar og ótvíræðar þar sem mikill fjöldi fólks af ólíku þjóðerni sækti sundlaugina.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »
Hera Björk - Evróvisjónfari ´10

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Trúlofunar- og giftingahringar
Auk gullhringa eigum við m.a. titanium og tungstenpör á fínu verði. Sérsmíði, fr...
Til sölu Porsche Boxster
Til sölu Porsche Boxster Árgerð: 2000 Ekin: 112 þús Flottur og í góðu ástand...
Hrossaskítur á sumarhúsalóðina
Nóg til, taktu eins og þú vilt. Afar gott að setja nýjan hrossaskít undir ungar ...
Fleetwood Ceyenne - árgerð 2006
Fellihýsið hefur alltaf verið geymt inni á vetrum og er með öllum aukahlutum. Up...
 
Grunn og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Grunn- og leikskólakennarar ...
Jobbtrygghet
Augl-/almannatengsl
JOBBTRYGGHET? UTFORDRENDE JOBB? ...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...