Fréttaskýring: Vandi heimila vanmetinn?

Heimilin í landinu glíma við mikinn fjárhagsvanda stækka

Heimilin í landinu glíma við mikinn fjárhagsvanda mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Morgunblaðið Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is
„Það er hægt að lesa það út úr útreikningum Seðlabankans að í stað þess að bankahrunið hafi fjölgað heimilum í vanda um að minnsta kosti 9.000, hefði ekkert verið að gert, þá stefnir í að fjölgunin verði lítil sem engin,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í umræðum á Alþingi í vikunni um fjárhagsstöðu heimilanna.

Jóhanna hefur væntanlega verið að vísa þarna til nýlegrar skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika, þar sem m.a. er fjallað um skuldavanda heimilanna. Þar kom fram að um 24 þúsund heimili væru í vanda og ættu í erfiðleikum með að ná endum saman um hver mánaðamót. Þetta eru um 23% af öllum skuldsettum heimilum í landinu, eins og staðan var um mitt síðasta ár, en Seðlabankinn telur að hlutfallið hefði farið í um 28% hefði ekki komið til aðgerða á borð við frystingu gengistryggðra lána.

Staðan í febrúar sl. var orðin sú að hlutfall heimila í vanda var komið í 22% en hefði verið í 26% án aðgerða, að mati bankans. Í skýrslu Seðlabankans kemur fram að sambærilegt hlutfall í byrjun árs 2008 hafi verið um 20%. Við bankahrunið í október 2008 var hlutfall heimila í vanda um 25%.

Telur Seðlabankinn að frysting gengistryggðra lána hafi komið í veg fyrir að hlutfall heimila, sem stæðu ekki undir greiðslubyrði lána og framfærslu, hækkaði verulega. Metur bankinn það svo að hlutfall heimila í vanda með gengistryggð lán hefði án aðgerða staðið í um 42% í febrúar sl. en hlutfallið hafi hins vegar verið tæp 33%, borið saman við 28% í upphafi árs 2008. Fram kemur í skýrslu bankans að ekki sé einsýnt hvernig meta eigi hvaða heimili eigi í vanda. Sé tekið mið af fjölda heimila sem séu á mörkum þess að ná endum saman í kjölfar aðgerða stjórnvalda fáist um 24 þúsund heimili. Vísbendingar séu um að aðgerðirnar lækki hlutfall skuldugra heimila um fjórar til fimm prósentur, sem þýði að um 5.000 heimili hafi komist í viðráðanlegri stöðu sökum aðgerðanna.

Telja samanburðinn skakkan

Sé miðað við mismunandi fjölskyldugerðir hefur fjölgun á skuldugum heimilum verið meiri meðal barnafjölskyldna, eða úr 23% í byrjun 2008 í 27% í febrúar sl., eftir aðgerðir stjórnvalda. Hefði ekkert verið aðhafst hefði hlutfall skuldugra barnafjölskyldna verið nærri 34% í byrjun þessa árs.

Ekki eru allir alls kostar sammála reikningsaðferðum Seðlabankans. Meðal þeirra eru Hagsmunasamtök heimilanna, sem telja tölur bankans vanmetnar og samanburðinn skakkan. Marinó G. Njálsson, sem á sæti í stjórn samtakanna, segir Seðlabankann gera ráð fyrir ýmsu í sínum tölum sem veikar forsendur séu fyrir eða hreinlega rangt. Áhrif aðgerða stjórnvalda hafi verið ofmetin af hálfu bankans.

„Sem dæmi þá gerir bankinn ráð fyrir að allir hafi nýtt sér greiðslujöfnun bílalána, þegar einungis innan við fimmtungur hefur gert það. Framfærsluviðmið hans eru röng og einnig vantar inn í ýmsa liði á gjaldahliðinni sem hafa hækkað frá samanburðarárinu. Á móti kemur að inn í tölur Seðlabankans á tekjuhliðinni er ekki reiknað með séreignarsparnaði og vegur það að einhverju leyti upp villuna á hinni hliðinni,“ segir Marinó, sem telur að minnst 35% heimila séu í miklum vanda og líkast til sé raunverulegt hlutfall á bilinu 42-60%.

Hann bendir jafnframt á að talan um 23% heimila í vanda hjá Seðlabankanum sé frá miðju síðasta ári, síðan þá hafi þróunin verið framreiknuð og ekki byggst á raunverulegum gögnum nema að hluta. Marinó segir forsætisráðherra hafa passað sig á að nefna ekki eina af helstu niðurstöðum rannsóknar Seðlabankans eins og hún hafi verið kynnt á málstofu í apríl sl., þ.e. að hópurinn í vanda sé að minnka en hins vegar sé vandi hans að aukast. Það sé lélegt hjá Samfylkingunni að grípa einhverja eina tölu og halda henni á lofti „eins og heilögum sannleika, þegar hún er það ekki,“ segir Marinó.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »
Hera Björk - Evróvisjónfari ´10

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Íbúð til leigu í Garðinum
4 herbergja Íbúð til leigu í Garðinum á Suðurnesjum. Laus 1. júlí. Langtímaleiga...
BLEKHYLKI
Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ...
Garðuðun Meindyraeyðir
Uða garða gegn maðki og lus eyði Köngulom af husum geitungum flo öll almenn og s...
Sirius Hundasnyrting, Hundaheim Mosfellsbæ
Tökum allar gerðir hunda í snyrtingu - Persónuleg þjónusta og frábær verð, gerið...
 
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Tækniskólinn - atvinnuauglýsing
Önnur störf
Framúrskarandi kennarar óskast í ...
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....