Vara við skelfiski úr Hvalfirði

Krækling er best að tína frá september fram í apríl

Krækling er best að tína frá september fram í apríl Sverrir Vilhelmsson

Mælingar á eitruðum þörungum í sjó sýna að talsverð hætta er á DSP og ASP eitrun við neyslu á skelfiski úr Hvalfirði. Matvælastofnun varar fólki við neyslu kræklings úr firðinum.

Sýni voru tekin 30. maí í Hvalfirði og greindust þörungar af  tegundunum Dinophysis og Pseudo-nitzschia yfir viðmiðunarmörkum, en einnig finnast Alexandrium tegundir sem valda PSP eitrun í firðinum. Alexandrium tegundir sem valda PSP eitrun hafa komið upp á öllum svæðum sem MAST og Hafrannsóknarstofnunin fylgjast með á undanförnum vikum eða í Breiðafirði, Eyjafirði, Hvalfirði og Steingrímsfirði, en tegundin hefur ekki náð umtalsverðu magni enn sem komið er.

Á svæðum þar sem eiturþörungar greinast í sjó er ávallt hætta á að skelfiskur innihaldi þörungaeitur og ber því að forðast neyslu á skelfiski, t.d. kræklingi frá þeim svæðum þegar eiturþörungar mælast yfir viðmiðunarmörkum. Þar sem fjöldi eiturþörunga breytist hratt á þessum tíma árs er ekki óhætt að neyta skelfisks nema að heilnæmi hans hafi verið staðfest með mælingum á þörungaeitri í sjálfri skelinni. MAST greinir magn þörungaeiturs í skel af tveimur svæðum, Breiðafirði og Eyjafirði.
 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Guðmundur Árnason.

Unglingspilts enn leitað

18:19 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ítrekar lýsingu eftir Guðmundi Árnasyni, sem hvarf er hann var á ferð í Kópavogi þann 17. febrúar sl. Meira »
Ferðamenn leggja leið sína í Landmannalaugar jafn vetur sem sumar. Mynd úr safni

Ósáttur við að vera þjófkenndur

18:17 Guðmundur Gústafsson, einn þeirra sem var í hópi jeppamanna í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum um helgina, er afar ósáttur við að hópurinn sé þjófkenndur en gps-staðsetningartæki var stolið í skálunum um helgina. Meira »

Fær frest til þriðjudags

Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
17:44 Stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur samþykkt að veita Gunnari Andersen, forstjóra FME, lengri frest til þess að andmæla fyrirhugaðri uppsögn. Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður FME, segir að Gunnar fái frest til klukkan 16 næstkomandi þriðjudags. Meira »

„Enginn greiði gerður með þessu klúðri“

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
16:37 „Það er öllum að verða augljóst að málsmeðferð þessa máls er klúður,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag um afgreiðslu Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Lýsa eftir ræningja

Spilakassar.
16:30 Lögreglan á Akureyri óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á manni sem framdi rán í Fjölumboðinu við Geislagötu á Akureyri í hádeginu í dag. Um er að ræða spilastað Gullnámunnar. Maðurinn komst af vettvangi með eitthvað af fjármunum úr sjóðsvél staðarins. Meira »

Verslunarstjóri dæmdur fyrir umboðssvik

BYKO.
16:37 Hæstiréttur dæmdi í dag fyrrverandi verslunarstjóra BYKO á Selfossi í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að umboðssvik. Maðurinn var talinn hafa komið því til leiðar að fyrirtækið 5x fékk afhentar vörur frá versluninni árið 2007 án þess að staðgreiða þær. Meira »

Leiga í félagslegu húsnæði hækkaði um 28%

16:32 Verð á húsaleigu fyrir félagslegar íbúðir hækkaði um 28,6% á tímabilinu 2007 til 2011. 14.055 fengu húsaleigubætur á síðasta ári og 3.756 fengu sérstakar húsaleigubætur. Þetta kemur fram í svari velferðarráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar alþingismanns. Meira »

Svartir sauðir á hálendinu

Landmannalaugar
16:27 Stjórn Ferðafélags Íslands íhugar að loka öllum skálum félagsins yfir vetrartímann vegna slæmrar umgengni í þeim. Um liðna helgi voru þrír hópar í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum og var lítill svefnfriður í skálanum vegna skrílsláta eins hópsins. Meira »

Mæling á PSA ekki áreiðanleg

Krabbameinsrannsóknir.
16:16 Mæling á PSA-mótefni í blóði gefur ekki nægilega áreiðanlegar upplýsingar til að hægt sé að mæla með aðferðinni til skimunar eftir krabbameini í blöðruhálskirtli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landlækni. Meira »

Icesave hefði sett Ísland á hausinn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
16:00 Formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlausson, sagði á Alþingi í dag að skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um afföll íbúðarlána og kostnað við niðurfærslu lána staðfesti það, væru forsendur hennar réttar, að ef Icesave-samningarnir sem ríkisstjórnin hefði reynt að koma í gegn hefðu verið samþykktir hefði það leitt til gjaldþrots íslenska ríkisins. Meira »

Vilja starfshóp um póstverslun

Íslandspóstur.
16:03 Ellefu þingmenn úr fjórum flokkum hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að fela forsætisráðherra að setja á fót starfshóp sem athugi þróun og regluverk í póstverslun hér og erlendis og geri tillögur um lagabreytingar og aðrar ráðstafanir til að skapa póstverslun viðeigandi samkeppnisstöðu. Meira »

Tíðinda að vænta innan tíu daga

Huang Nubo
15:49 „Ég vona að við munum hafa einhver tíðindi innan tíu daga,“ segir Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings, spurður um mögulegar fjárfestingar kínverska fjárfestisins Huang Nubo á Norðausturlandi. Hann bætir við að rík áhersla sé lögð á að sem mest sátt náist um málið. Meira »

Ítarlegar upplýsingar um húsaleiguverð

15:46 Þjóðskrá Íslands birtir í fyrsta sinn á morgun upplýsingar um húsaleigu eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu. Um samstarfsverkefni Þjóðskrár og Íbúðalánasjóðs er að ræða en sjóðurinn á 700 leiguíbúðir. Meira »

Rannsókn nauðgunarmála lokið

Egill Einarsson
15:31 Rannsókn lögreglu höfuðborgarsvæðisins á nauðgunarkærum á hendur Agli Einarssyni er lokið. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, staðfesti þetta við fréttavef Morgunblaðsins. Málið er því að nýju komið ákærusviðs lögreglunnar. Meira »

Selur fylgist með skútunum

Myndarlegur selur heldur til við skútubryggjuna á Ísafirði.
14:52 Segja má að nýr hafnarvörður sé tekinn til starfa við skútubryggjuna á Ísafirði en þar hefur myndarlegur selur haldið sig síðustu daga. Selurinn tekur lífinu með ró og kippir sér lítið upp við umferð mannfólksins á höfninni. Meira »

Lagði mat á vegslóða

Utanvegaakstur er vaxandi vandamál.
15:33 Akstur utan óskilgreindra vega er alvarlegt vandamál hér á landi. Til hefur orðið víðáttumikið kerfi vegslóða án þess að farið hafi verið eftir skipulagsferlum. Gísli Rafn Guðmundsson, nemandi við Landbúnaðarháskóla Íslands vann síðastliðið sumar verkefni sem ber heitið „Skipulagsferlar og matsskalar vegna vegslóða“. Meira »

Óljóst um hvað málið snýst

Þórhildur Þorleifsdóttir, fyrrverandi fulltrúi í stjórnlagaráði.
15:06 „Hvað það varðar að við komum að þessu aftur þykir mér það alls ekki afleit hugmynd,“ segir Þórhildur Þorleifsdóttir, sem sæti átti í stjórnlagaráði á síðasta ári, en Alþingi ákvað í gær að vísa frumvarpi ráðsins að nýrri stjórnarskrá aftur til þess til umfjöllunar. Meira »

Ráðgjöf veitt á Atvinnutorgi

Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri, Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar skrifuðu undir samning ...
14:25 Í hádeginu í dag skrifuðu þeir Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri, Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar undir samning um Atvinnutorg í Hafnarfirði. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
FERMINGARGJÖFIN Í ÁR
Fermingargjöfin í ár. Tískuúr, margir litir. Verð frá kr. 3.500,-   Skarthúsið, ...
Óskum eftir tvíburavagni / kerru
Óskum eftir kerru/vangni fyrir tvíbura. Verður að vera kerra sem er hægt að setj...
VILTU VITA HVAÐ ER FRAMUNDAN ?
Þeir sem farnir eru segja mér um framtið þína. Tarot og bollar. Tímap. Erla, s. ...
TIL SÖLU Í SVEITINA ZETOR 5011 V. 250 Þ.
Til sölu í sveitina Zetor 5011 v. 250 þ. Zetor 6718 v. 150 þ. Land Rover diesel ...
 
Sýslumaðurinn í borgarnesi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Bifreiðaviðgerðarmaður
Iðnaðarmenn
Bifreiða-viðgerðarmaður Bílaleiga óskar ...
Framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs
Stjórnunarstörf
...
Sýslumaðurinn á akureyri - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....