Fréttaskýring: Búast við fjölgun hæstaréttardómara
Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is
Á ríkisstjórnarfundi þann 18. maí sl. var samþykkt að meta nauðsynlegar fjárveitingar til þess að styrkja stöðu og sjálfstæði dómstólanna, einkum Hæstaréttar, í ljósi aukins málafjölda, m.a. vegna bankahrunsins.
Ríkisstjórnin fól ráðuneytisstjórum forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis og dómsmála- og mannréttindaráðuneytis að fara með málið en fyrir þeirri nefnd liggur nú áætlun um útgjaldaauka við fjölgun dómenda við Hæstarétt.
Í óvissu um álagið
Þorsteinn A. Jónsson skrifstofustjóri Hæstaréttar á von á því að kærumálum muni fjölga verulega á næstunni og jafnframt að sakamálum og munnlega fluttum einkamálum muni fjölga.„Skráning mála er veruleg, skráð mál í ár eru fleiri en í fyrra sem þó var algert met. Þannig að fjölgun dómara hefur verulega þýðingu. Við erum aftur á móti í óvissu um hvað álagið mun aukast mikið. Við eigum von á áframhaldandi aukningu mála en við höfum engar forsendur til að meta hver hún er,“ segir Þorsteinn sem bendir á að í fréttum gera slitastjórnir bankanna ráð fyrir hundruðum eða jafnvel þúsundum mála sem komi til kasta dómstóla á næstu misserum.
Verðum að fylgjast vel með
Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra segir mikilvægt að koma til móts við aukinn málafjölda í Hæstarétti en engu að síður verði að gæta að sjálfstæði dómstóla við ákvörðun um aukna fjárveitingu til Hæstaréttar.„Við höfum hlustað á það í vetur að það sé mikill málafjöldi, allt sé í járnum og þetta sé allt að fara til fjandans. Ég hugsaði því með mér eftir útgáfu skýrslunnar að stjórnvöld og ráðherrar verða að gera sér grein fyrir því að þeir bera áyrgð. Við verðum að fylgjast vel með því sem er að gerast og þó svo þetta sé sjálfstætt dómsvald, sem er þriðji armur ríkisvaldsins, þá fann ég til ábyrgðar,“ segir Ragna sem sendi bréf til Hæstaréttar þar sem þeirri fyrirspurn var beint til réttarins hvort þeir hefðu hug á að gera reglubundna könnun á álagi á dómstólum þannig unnt verði að meta á hverjum tíma á hvaða hátt sé best að bregðast við þessum aukna málafjölda.
Dómstólaráð svaraði fyrirspurn ráðherra með mati sínu að fjölga þurfi dómurum um þrjá. Hæstiréttur starfar í deildum en lágmarksfjöldi dómenda í hverju máli eru þrír. Þannig mun fjölgun dómara vera marklaus nema a.m.k. þrír séu skipaðir til viðbótar.
„Við metum þennan útgjaldaauka á tæpar 72 milljónir á ársgrundvelli. Þetta þýðir að sjálfsögðu aukin útgjöld til dómsmála en dómsmálagjöld voru hækkuð verulega núna um áramótin. Í rauninni er það tekjuaukning fyrir ríkissjóð, svo vonandi mun þetta standa undir kostnaði,“ segir Ragna sem vonast til að leggja frumvarp um fjölgunina fyrir Alþingi í haust en fjölgun dómara krefst lagabreytingar.





































