Draumurinn úti

„Við erum búnir að innsigla og það verður væntanlega gerð krafa um það að þessi staður verði ekki notaður áfram til ólöglegrar starfsemi,“ segir Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, um söluturninn Drauminn við Rauðarárstíg. Eigandinn situr nú í gæsluvarðhaldi.

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði hann í fimm daga gæsluvarðhald á föstudag. Það rennur út á miðvikudag.

Á fimmtudag var gerð húsleit í söluturninum og þar fannst töluvert magn lyfseðilsskyldra lyfja auk ólöglegs tóbaks. Þá var gerð húsleit á fjórum öðrum stöðum og í þeim aðgerðum fannst mikið magn af munn- og neftóbaki, lyfsöluskyldum  lyfjum, lítilsháttar af fíkniefnum og nokkrar milljónir í peningum. 

„Þetta er búið að koma upp nokkrum sinnum áður. Þetta er áfram í sama ferli. Hann lætur sér ekki segjast, og það gerir þetta sýnu alvarlegra núna. Við verðum að koma í veg fyrir að ólögleg starfsemi þrífist,“ segir Geir Jón í samtali við mbl.is. 

Rannsókn málsins stendur enn yfir en hún er langt komin.

Enginn annar hafi verið handtekinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert