Eigandi söluturns í gæsluvarðhaldi

mbl.is/Júlíus

Eigandi söluturnsins Draumsins við Rauðarárstíg situr í gæsluvarðhaldi eftir fimm húsleitir á fimmtudag, en hann varð úrskurðaður í fimm daga gæsluvarðhald sl. föstudag.  Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV.

Fram hefur komið á mbl.is að lögreglan gerði húsleit sl. fimmtudag í söluturninum og á tveimur öðrum stöðum sem tengjast rekstraraðilum. Lögreglan lagði hald á fíkniefni í húsnæði sem tengjast þeim sem reka verslunina.

Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn sagði að yfirheyrslur hefðu staðið fram eftir kvöldi. Ýmislegt hefði komið í ljós í rannsókninni sem átti eftir að skoða betur í samvinnu við tollayfirvöld og heilbrigðiseftirlit. Hann sagði að engin fíkniefni hefðu fundist í söluturninum sjálfum, en fíkniefni hefðu fundist í húsnæði sem tengjast þeim sem reka verslunina.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert