Lyf & heilsa greiði 100 milljónir

Lyf og heilsa stækka

Lyf og heilsa Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Lyf & heilsa misnotaði markaðsráðandi aðstöðu sína með skipulagðri atlögu að Apóteki Vesturlands. Þetta er niðurstaða áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Hefur fyrirtækinu verið gert að greiða 100 milljónir króna í sekt fyrir brotin. Er þetta lægri sekt en Samkeppniseftirlitið hafði gert félaginu að greiða en samkvæmt úrskurði þess var Lyfjum og heilsu gert að greiða 130 milljónir króna í stjórnvaldssekt.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.

Aðdragandi málsins er að sumarið 2007 hóf nýtt apótek á Akranesi, Apótek Vesturlands, samkeppni við apótek í eigu Lyfja & heilsu sem var fyrir á staðnum. Í kjölfarið barst Samkeppniseftirlitinu ábending um að Lyf & heilsa hefðu gripið til aðgerða til að hindra að Apótek Vesturlands næði að hasla sér völl á Akranesi. Samkeppniseftirlitið ákvað að taka málið til rannsóknar og framkvæmdi húsleit hjá Lyfjum & heilsu í september 2007.
 
Eftir rannsókn málsins taldi Samkeppniseftirlitið sannað að Lyf & heilsa hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína með skipulagaðri atlögu gegn apótekinu sem beinlínis hafði það að markmiði að raska samkeppni. Fólust aðgerðirnar annars vegar í stofnun svonefnds vildarklúbbs sem var ætlað að tryggja að mikilvægir viðskiptavinir myndu ekki hefja viðskipti við Apótek Vesturlands. Hins vegar fólust aðgerðirnar í því sem Lyf & heilsa nefndi „baráttuafslætti“.

Um var að ræða verulega afslætti á mikilvægum lyfjum og voru þeir aðeins í boði á Akranesi. Var þessum aðgerðum ætlað að koma keppinautnum af markaðnum og senda skýr skilaboð um að ekki borgaði sig að reyna að keppa við Lyf & heilsu. Voru brotin talin alvarleg og var fyrirtækinu gert að greiða 130.000.000 kr. stjórnvaldssekt.
 
Lyf & heilsa skaut ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og krafðist þess að hún yrði felld niður eða sektir lækkaðir verulega. Fyrirtækið gerði m.a. athugasemdir við skilgreiningu markaða málsins, stöðu þess á markaði og mótmælti því að hafa brotið samkeppnislög.
 
Í úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála, sem birtur er í dag, er staðfest sú niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að Lyf & heilsa sé í markaðsráðandi stöðu og að aðgerðir fyrirtækisins hafi falið í sér alvarleg brot á samkeppnislögum. Áfrýjunarnefndin taldi hæfilegar sektir kr. 100.000.000 kr. Til stuðnings lægri sektum benti nefndin á að brotin takmörkuðust að mestu leyti við þröngt markaðssvæði. Þá var einnig tekið tillit til breyttra aðstæðna í efnahagslífi þjóðarinnar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »
Hera Björk - Evróvisjónfari ´10

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Ruggustóll
Stór og flottur ruggustóll til sölu. Verð 30 þús. kr. Uppl. mit@simnet.is....
Ösp er nýtt úr með Mp4 spilara og fleiru
Öspin er 8GB armbandsúr, Mp3, Mp4, útvarp, myndasafn og fl. Verð 18.750,- Góð dæ...
Toyota Corolla Touring 4x4 árg 2000 verð 499.000
Toyota Corolla Touring 4x4 árg 2000 ekinn 166.000 km Tilboðsverð 499.000 staðgr...
Eikarhurð
Eikarhurð til sölu, 80 cm, karmur fylgir og læsing, nýleg hurð. Vinsamlega sen...
 
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...