Uppgötvarnir í ljóstækni
Vísindamenn á eðlisfræðistofu Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands segjast hafa náð mikilvægum áfanga í rannsóknum í örljóstækni. Niðurstöður rannsóknahópsins, sem Kristján Leósson vísindamaður við Raunvísindastofnun Háskólans stýrði, birtust í hinu virta tímariti Nature Photonics í síðustu viku.
Þetta segir í fréttatilkynningu frá Háskóla Íslands.
Tilraunir vísindamanna HÍ hafa snúist um að yfirvinna ljóstap sem hlýst af því að þjappa ljósinu meira saman en gert er í hefðbundinni ljóstækni. „Það hefur lengi verið vandamál fyrir hagnýtingu á þessu sviði að afl ljósmerkis tapast mjög hratt þegar því er þjappað mikið saman. Fjöldi rannsóknahópa um allan heim hefur undanfarin tvö til þrjú ár keppst við að sýna fram á mögulegt sé að vega upp á móti þessu tapi með því að magna ljósmerkið upp, en ekki hefur tekist að sýna fram á það með óyggjandi hætti fyrr en nú,“ segir Kristján Leósson. Hann bætir við að möguleikarnir í að hanna efni með nýstárlega ljóseiginleika séu gríðarlega miklir.
Í umræddri grein í Nature Photonics, sýndu vísindamenn Háskóla Íslands fram á ljósmögnun í sérstakri tegund bylgjuleiðara þar sem ljósið er bundið í svokölluðum rafgasskautunareindum. Rafgasskautunareindir eru samþætt ástand ljóss og rafeinda á málmyfirborði og hafa því bæði eiginleika ljóseinda og efniseinda.
Örljóstækni er tiltölulega nýtt rannsóknasvið sem getur leitt til mikilvægra nýjunga á fjölmörgum sviðum, t.d. gert skjái og sjónvörp ódýrari, léttari og umhverfisvænni, margfaldað gagnaflutningshraða í tölvum og aukið nýtingu sólarorku í sólarsellum.
Tilraunir hafa einnig verið gerðar með notkun slíkrar tækni í lækningaskyni. Þá er örsmáum málmögnum komið fyrir í líkamanum til að eyða krabbameinsæxlum með innrauðu ljósi sem vinnur á æxlinu en er skaðlaust fyrir heilbrigða vefi líkamans. Örljóstæknin gæti jafnvel leitt af sér aðferðir til að gera hluti ósýnilega.
Innlent »
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Telja líklegt að Icesave-samningar náist
- Miðvikudagur, 14. október 2009, Innlent Íslenskur gítarstillir slær í gegn
- Miðvikudagur, 16. desember 2009, Innlent Veitir vísbendingar um stökk í þróuninni
- Miðvikudagur, 27. október 2010, Innlent Erfðakortið endurbætt
- Mánudagur, 1. febrúar 2010, Innlent Ísland enn á athugunarlista
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































