Hanna Birna kjörin forseti borgarstjórnar

Jón Gnarr og Hanna Birna Kristjánsdóttir föðmuðust í ráðhúsinu í dag. stækka

Jón Gnarr og Hanna Birna Kristjánsdóttir föðmuðust í ráðhúsinu í dag. mbl.is/Kristinn

Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn, var kjörin forseti borgarstjórnar til eins árs með öllum greiddum atkvæðum á fyrsta borgarstjórnarfundi nýrrar borgarstjórnar rétt í þessu. Þá var Sóley Tómasdóttir kjörin fyrsti varaforseti borgarstjórnar og Björk Vilhelmsdóttir annar varaforseti.

Kjör borgarstjóra hafði ekki farið fram þegar forseti borgarstjórnar var kjörinn. Því var Hanna Birna Kristjánsdóttir bæði forseti borgarstjórnar og starfandi borgarstjóri í örfáar mínútur.

Hanna Birna las þá upp svohljóðandi bókun sem samþykkt var einróma af öllum borgarfulltrúum:


Besti flokkurinn og Samfylkingin hafa gert með sér málefnasamning og þar
með myndað  meirihluta í borgarstjórn. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
og VG eiga enga aðild að þeim meirihluta eða málefnasamningi. Vilji er hins
vegar fyrir því hjá nýkjörinni borgarstjórn að auka samvinnu milli flokka
og nýta krafta allra borgarfulltrúa í samræmi við vinnubrögð fráfarandi
borgarstjórnar.

Í staðinn fyrir hefðbundna kosningu á milli lista meirihluta og lista
minnihluta í ráð og nefndir hafa borgarfulltrúar náð samkomulagi um að bera
fram eina tillögu að nefndarskipan til að ná fram auknu jafnvægi milli
flokka í nefndum og ráðum borgarinnar. Fulltrúar meirihlutans munu fara með
formennsku í fagráðum en formennska í hverfisráðum og starfshópum mun
skiptast milli flokka.

Aðgerðarhópur borgarstjórnar í efnahags- og atvinnumálum, sem skipaður var
á síðasta kjörtímabili, mun halda áfram sínum störfum og munu oddvitar
allra framboða taka þátt í því starfi.

Að auki mun forysta ákveðinna verkefna og embætta vera óháð því hverjir
eiga aðild að meirihlutanum. Þannig munu fulltrúar Sjálfstæðisflokks og VG
taka að sér embætti forseta og fyrsta varaforseta borgarstjórnar og leiða
ákveðna starfshópa um ýmis mikilvæg hagsmunamál sem borgarstjórn telur
brýnt að unnið verði að í samstarfi allra flokka eins og atvinnumálahóp,
sem starfaði á síðasta kjörtímabili. Þetta fyrirkomulag er ákveðið til eins
árs í senn.

Það er von allrar borgarstjórnar að þau skref sem hér eru stigin til
áframhaldandi samvinnu allra borgarfulltrúa á vettvangi borgarstjórnar
verði til heilla fyrir borgina og borgarbúa.
 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »
Hera Björk - Evróvisjónfari ´10

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Akureyri - Glæsileg íbúðagisting
Rúmgóð og vel útbúin íbúðagisting. Uppábúin rúm, handklæði, nettenging og lokaþr...
Sumarhúsasmíði Sveins.
Íslensk hágæða framleiðsla. Löggiltur húsasmíðameistari. Smíðum eftir þínum teik...
TOYOTA COROLLA H/B
Toyota Corolla H/B Sol, 01/2004, ekinn 84 þús. Ssk., vindskeið,...
Kawasaki KX 85 árg. 2007 til sölu.
Nýr cylender, nýr stimpill, nýjar legur ì mòtor, ný dekk, ný plöst og ný lìmmið...
 
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...