Þrjár námsbrautir lagðar niður hjá Háskólanum í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík hefur ákveðið að leggja niður þrjár námsbrautir þegar núverandi nemendur hafa lokið sínu námi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skólanum. vær þessara námsbrauta, diplómanám í kennslufræði og MPH (meistaranám) í lýðheilsufræði, verða lagðar niður 2011. Sú þriðja, BSc (grunnnám) í stærðfræði, verður lögð niður 2012.
Segir í tilkynningu frá skólanum að ljóst sé að fjárframlög ríkisins til háskóla á Íslandi muni lækka verulega á næsta ári. Háskólinn í Reykjavík ætlar ekki að mæta því með flötum niðurskurði, heldur með því að efla enn frekar kennslu og rannsóknir í tækni, viðskiptum og lögum, kjarnasviðum skólans, samkvæmt tilkynningu.
Í staðinn verður stærðfræðikennsla í öðru námi á kjarnasviðum skólans styrkt enn frekar. Tæplega 100 af um 3.000 nemendum skólans eru á þessum þremur námsbrautum.
Sálfræði og íþróttafræði áfram kennd
„Breytingarnar verða gerðar í áföngum og mun HR uppfylla allar skuldbindingar sínar gagnvart núverandi nemendum á umræddum námsbrautum. Vert er að geta að áfram verður haldið námi í sálfræði og íþróttafræði við HR.
Það er stór og erfið ákvörðun fyrir háskóla að leggja niður námsbrautir og ekki var farið í slíkt fyrr en aðrar leiðir voru fullreyndar. Námsbrautirnar þrjár, eins og aðrar brautir við Háskólann í Reykjavík, hafa gengið vel og hefur mikil ánægja verið meðal nemenda með kennslu og skipulag námsins.
Lækkun fjárframlaga ríkisins fyrir árin 2009 og 2010 var mætt með auknum byrðum á alla sem starfa við skólann, í formi launalækkunar, aukins álags og mikillar hagræðingar í rekstri.
Þar sem ekki verður lengra komist án þess að það bitni á gæðum starfsins, vill HR mæta enn minnkandi fjárframlögum af ábyrgð og með heildarhagsmuni nemenda og samfélags að leiðarljósi," segir enn fremur í tilkynningunni.
Aðsókn að námi í Háskólanum í Reykjavík er góð og eru umsóknir um skólavist í vor fleiri en í fyrra.
Þær breytingar sem nú eru kynntar eru gerðar með vitund menntamálaráðuneytisins og samræmast þeirri stefnu að skapa skýra sérstöðu og auka verkaskiptingu, segir ennfremur í tilkynningunni sem HR hefur sent til fjölmiðla.
Innlent »
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 15. júní 2010, Innlent Kennslu- og lýðheilsunám lagt af
- Laugardagur, 14. ágúst 2010, Innlent „Rekinn fyrir gagnrýni“
- Mánudagur, 9. ágúst 2010, Innlent Verið að skjóta sig í fótinn
- Mánudagur, 11. janúar 2010, Innlent Ný bygging HR tekin í notkun
- Laugardagur, 30. maí 2009, Innlent Stór frumkvöðlaráðstefna til Íslands
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































