Vill lög um veg í Teigsskógi
Einar Kr. Guðfinnsson alþingismaður lagði í gær fram á Alþingi frumvarp sem miðar af því að hefja megi vegaframkvæmdir í svonefndum Teigsskógi í Austur-Barðarstrandarsýslu. Framkvæmdir þar hafa tafist vegna kröfu um umhverfismat sem Hæstiréttur staðfesti nýlega.
Í samgönguáætlun sem gildir til ársins 2014 er gert ráð fyrir að ljúka uppbyggingu Vestfjarðavegar milli Bjarkalundar í Reykhólahreppi og Flókalundar í Vatnsfirði. Liður í þeirri uppbyggingu er lagning nýs vegar, allt að 48 km, frá Bjarkalundi að Eyri í Kollafirði, sem ætlað er að bæta samgöngur í Reykhólasveit og milli Vestfjarða og annarra landshluta.
Áfangi á þessari leið er vegurinn, sem frumvarpið fjallar um, en hann á að liggja frá Þorskafirði, um Hallsteinsnes, Teigsskóg og Grónes að Melanesi þar sem Djúpifjörður og Gufufjörður yrðu þveraðir.
Vegagerð á þessu svæði hefur eins og áður sagði tafist vegna kröfu um umhverfismat, sem Hæstiréttur staðfesti sl. haust
Fyrir lá úrskurður umhverfisráðherra frá 2007, sem heimilaði framkvæmdir að uppfylltum ströngum skilyrðum, enda bætti vegurinn öryggi vegfarenda til mikilla muna. Taldi rétturinn að ekki mætti taka tillit til aukins umferðaröryggis þegar umhverfisáhrif væru metin, en Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, fyrsti flutningsmaður frumvarpsins og meðflutningsmenn hans, Ásbjörn Óttarsson og Gunnar Bragi Sveinsson eru ósammála því mati.
„Það er algjörlega óviðunandi að vegagerð á þessum slóðum geti ekki haldið áfram þegar peningar til verksins eru til staðar. Í raun er þetta til háborinnar skammar. Markmið þess frumvarps sem er hér lagt fram, er að rjúfa þennan grafalvarlega vítahring og heimila vegagerðina með lögum,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson í samtali við Morgunblaðið á dögunum.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að þegar verði hafist handa við að leggja veginn án umhverfismats, enda liggi úrskurður umhverfisráðherra fyrir. Á samgönguáætlun 2007 – 2010 voru áætlaðir um þrír milljarðar til framkvæmda. Verði frumvarpið að lögum ætti því ekkert að vera því til fyrirstöðu að vegurinn verði lagður, hvorki umhverfismat né fjárskortur.
Innlent »
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 11. október 2010, Innlent Strákagöng lokuð í nótt
- Mánudagur, 30. nóvember 2009, Innlent Vegur milli Eiðis og Þverár í umhverfismat
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
- Laugardagur, 9. júlí 2011, Innlent Skipar samráðshóp um veg úr Þorskafirði
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































