Bílalánsdómar í Hæstarétti í dag
mbl.is
Hæstiréttur kveður upp fyrstu dómana um gengistryggð bílalán. Í öðru málinu var eiganda bifreiðarinnar gert að greiða lánið miðað við erlent gengi en í hinum segir að niðurstaða málsins geti ekki ráðist af því hvort lánafyrirtækið hafi fjármagnað lánafyrirgreiðslu sína á innlendum eða erlendum lánamarkaði.
Í fyrra málinu er að ræða dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í desember en þar var maður dæmdur til að greiða SP-fjármögnun 4,3 milljónir króna vegna myntkörfuláns.
SP-fjármögnun hf. stefndi manninum vegna myntkörfuláns sem hann tók til kaupleigu á bíl í maí 2007. Maðurinn stóð við samninginn þar til í september 2008. SP-fjármögnun rifti honum í janúar 2009.
Dómarinn féllst ekki á þá kröfu mannsins að lánið hefði verið ólöglegt þar sem SP-fjármögnun hefði ekki verið heimilt að binda afborganir þess við gengi japansks jens og svissnesks franka samkvæmt ákvæðum laga um vexti og verðtryggingu.
Fallist var á með SP-fjármögnun að heimilt hefði verið að binda afborganir lánsins í íslenskum krónum við gengi krónunnar gagnvart hinum erlendu myntum. Maðurinn hefði vitandi vits tekið lán í erlendri mynt. Lög stæðu ekki í vegi fyrir að hægt væri að krefjast skila á sambærilegu verðmæti og lánað var.
Í síðari dómnum sem féll þann 12. febrúar sl. kemur fram að óheimilt er að binda skuldbindingar í íslenskum krónum við gengi erlendra gjaldmiðla. Sýknaði héraðsdómur mann á Akureyri af kröfum Lýsingar hf. vegna eftirstöðva af bílaláni.
Málavextir eru að vegna bílakaupa var slegið lán í íslenskum krónum sem bundið var dagsgengi erlendra mynta. Það segir héraðsdómur óheimilt og vísar til laga um vexti og verðtryggingu.
Innlent »
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 3. desember 2009, Innlent Gert að greiða myntkörfulán
- Miðvikudagur, 16. júní 2010, Innlent Gengistryggingin dæmd óheimil
- Fimmtudagur, 3. desember 2009, Innlent Þarf að borga bílalánið
- Miðvikudagur, 26. maí 2010, Innlent Stíga skrefið á undan Árna Páli
- Föstudagur, 18. júní 2010, Innlent Funda um gengistryggð lán
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































