Beggja vegna borðsins
Bókari sendiráðs Íslands í Vín notfærði sér þá aðstöðu sína að geta útbúið millifærslur til sendiráðsins frá Íslandi um leið og hann hafði eftirlit með þeim, að því er fram kemur í úttekt Ríkisendurskoðunar. Bókarinn er sakaður um fjárdrátt fyrir sem svarar rétt rúmlega 40 milljónir króna.
Aðspurð um málið segir Urður Gunnarsdóttir, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins, að vinna sé hafin við að endurskoða verklagsreglur um bókhald og að reiknað sé með að því verði lokið fyrir áramót.
Unnið sé að því að skilja að greiðslur og færslu bókhalds. Starfsmaður sem annist millifærslur til sendiráða komi ekki nálægt bókhaldsstörfum að neinu leyti.
„Ráðuneytið hefur nú þegar brugðist við skýrslu Ríkisendurskoðunar og mun gera það áfram. Því verki er ekki lokið. Ríkisendurskoðun mælist til þess að farið verði út í endurskoðun á verkferlum og það verður gert. Allt eftirlit hefur verið hert en unnið er að því að flytja bókhaldsverkefni til Íslands. Málin eru í gagngerri endurskoðun en henni verður væntanlega ekki lokið fyrr en um áramót,“ segir Urður.
Fram kemur í inngangi skýrslu Ríkisendurskoðunar að margir samverkandi þættir hafi leitt til þess fjársvikin hafi orðið jafn umfangsmikil og raun ber vitni, eða rúmar 259.000 evrur, eða sem svarar um 40,6 milljónum króna á núverandi gengi.
Verklagsreglum ekki fylgt til hlítar
Í innganginum segir: „Ekki var að öllu leyti fylgt þeim verklagsreglum sem í gildi voru, starfsmaðurinn sinnti tveimur ósamrýmanlegum störfum og ekki var viðhöfð nægjanleg varfærni við samþykkt millifærslna.
Skv. verklagsreglum ráðuneytisins skal skila afstemmingu á bankareikningi mánaðarlega til ráðuneytisins og skal ljósrit af bankareikningi fylgja með afstemmingunni sem skönnuð er inn í málaskrá ráðuneytisins.
Hins vegar er hvergi mælt fyrir um að þær skulu skoðaðar mánaðarlega og eru þær því ekki yfirfarnar með skipulegum hætti nema einu sinni á árinu. Athugun Ríkisendurskoðunar leiddi í ljós að allar bankaafstemmingar sendiráðsins í Vín á tímabilinu febrúar til júní 2009 voru rangar auk þess sem í engu tilfelli fylgdi bankayfirlit eins og mælt er fyrir um.
Með því að fela viðkomandi starfsmanni að útbúa beiðnir um millifærslur á fé til sendiráðanna gafst honum tækifæri til að færa meira fé á bankareikning sendiráðsins í Vín en þörf var á. Starfsreynsla starfsmannsins gerði honum kleift að útbúa trúverðugar beiðnir og vegna þessa trausts sem hann naut var ekki viðhöfð nægjanleg varfærni við samþykkt þessara beiðna.“







































