53 sækja um stöðu bæjarstjóra

Bæjarstjórn Akureyrar.
Bæjarstjórn Akureyrar. mbl.is/Skapti

Alls hafa 53 umsóknir borist um stöðu bæjarstjóra á Akureyri en bæjarstjórn Akureyrar stefnir að því að ljúka ráðningunni um næstu mánaðarmót.

Listi fólksins tók við völdum á Akureyri 15. júní sl., þegar ný bæjarstjórn kom til fyrsta fundar í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna. L-listinn fékk þá sex bæjarfulltrúa af ellefu en það er í fyrsta skipti sem eitt stjórnmálaafl nær meirihluta í bæjarstjórn.

Þeir sem hafa sótt um eru eftirfarandi:

Aðalsteinn Ingi Pálsson, forstjóri
Arnar Már Frímannsson, háskólanemi
Ágúst Kr. Björnsson, framkvæmdastjóri
Ágúst Már Garðarsson, matreiðslumaður
Ásgeir Magnússon, forstöðumaður
Birgir Örn Friðjónsson, rekstrarstjóri
Björk Sigurgeirsdóttir, viðskiptafræðingur
Björn Ingimarsson, ráðgjafi
Dofri Hermannsson, verkefnisstjóri
Einar Vilhjálmsson, viðskiptafræðingur
Eiríkur Björn Björgvinsson, fyrrverandi bæjarstjóri
Elísabet Katrín Friðriksdóttir, nútímafræðingur
Evert Stefán Jensson, rafiðnfræðingur
Garðar Garðarsson, vaktmaður
Gauti Þór Reynisson, ráðgjafi
Gísli Tryggvason, lögfræðingur
Guðrún Frímannsdóttir, fréttamaður
Guðrún Gísladóttir, framkvæmdastjóri
Gunnar Árnason, ráðgjafi
Gunnar Rafn Jónsson, læknir
Gunnsteinn R. Ómarsson, verkefnastjóri
Harpa Þorbjörg Jónsdóttir, heimavinnandi
Haukur Árni Hjartarson, fræðslufulltrúi
Helgi Hrafn Halldórsson, tölvunarfræðingur
Hjörleifur Hallgríms, framkvæmdastjóri
Húni Heiðar Hallsson, lögfræðingur
Ingi Steinar Ellertsson, verkefnastjóri
Jóhannes Jakobsson, sölumaður
Jóhannes Valgeirsson, ráðgjafi
Jón Hrói Finnsson, stjórnsýslufræðingur
Júlíus Júlíusson, framkvæmdastjóri
Nína Björg Sæmundsdóttir, viðskiptafræðingur
Ólafur Örn Ólafsson, fyrrverandi bæjarstjóri
Óskar Baldursson, framkvæmdastjóri
Páll Magnússon, bæjarritari
Ragnar Jörundsson, fyrrverandi bæjarstjóri
Ragnar Sigurðsson, háskólanemi
Sigfús E. Arnþórsson, viðskiptastjóri
Sigríður Aðalsteinsdóttir, háskólanemi
Sigríður Stefánsdóttir, samskiptastjóri
Sigrún Elsa Smáradóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi
Sigurður Sigurðsson, byggingaverkfræðingur
Skúli Gautason, viðburðastjóri
Sverrir Freyr Jónsson, háskólanemi
Trausti Jörundarson, sjómaður
Valtýr Þór Hreiðarsson, ráðgjafi
Vigfús Kr. Hjartarson, framkvæmdastjóri
Þorgeir Óskar Margeirsson, verkfræðingur
Þorsteinn Fr. Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Þorsteinn Gunnar Jónsson, bókasafnsfræðingur
Þorsteinn Gunnarsson, þróunarstjóri
Þórir Kristinn Þórisson, fyrrverandi bæjarstjóri
Þuríður Sólveig Árnadóttir, sjúkraþjálfari
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert