Minni ölvunarakstur og færri slys í umferðinni
Umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um fimmtung, eða 20%, á fyrstu 5 mánuðum ársins miðað við sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Umferðaróhöppum þar sem ölvun kemur við sögu fækkar líka á sama tímabili og eru það góð tíðindi að mat lögreglunnar.
Slysum fækkaði mest í Mosfellsbæ samkvæmt skýrslunni, eða um 80% úr 5 slysum frá janúar-maí í fyrra í 1 slys árið 2010. Á sama tíma fækkar slysum í Hafnarfirði um 61%, í Laugardal og Vesturbæ Reykjavíkur um 50% og í Háaleitishverfi um 42%. Slysum fjölgaði hinsvegar í Árbæ um 41%, úr 12 slysum á tímabilinu í fyrra í 17 slys í ár.
Þegar skoðuð eru öll umferðaróhöpp- og slys þar sem grunur leikur á ölvun ökumannsins kemur í ljós að þeim fækkar um 6% á milli ára, úr 66 árið 2009 í 62 árið 2010. Á sama tíma fækkar kærum vegna ölvunaraksturs um 9%, úr 385 tilvikum í 349. Kærum vegna ölvunaraksturs fækkaði líka á milli áranna 2008 til 2009 og segir í skýrslunni að þetta sé athyglisverð þróun sem bendi til þess að ölvuðum ökumönnum fari fækkandi í umferðinni.
Á hinn bóginn fjölgar umferðaróhöppum sem tengjast fíkniefnaneyslu um 21% á milli ára, úr 19 tilvikum í fyrra í 23. Árin 2007 og 2008 voru óhöpp tengd fíkniefnaakstri 14 talsins. Kærum vegna fíkniefnaaksturs hefur hins vegar fækkað um 9%, eftir mikla fjölgun árið 2009 frá 2008.
Innlent »
Laugardagur, 11.2.2012
- „Ég er í skýjunum“
- „Mjög sérstök tilfinning“
- Jónsi og Greta til Bakú
- Úrslitakeppnin hafin í Hörpu
- Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka
- Fjör á 112-deginum á Húsavík
- Hvessir af suðri seint í kvöld
- Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti
- Ekki hika – hringdu til öryggis
- Möguleikar nýju framboðanna
- Enginn flótti af Y-lista
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðaþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 14. ágúst 2009, Innlent Tíu teknir fyrir hraðaakstur
- Föstudagur, 23. apríl 2010, Innlent Ekið á hross við Kotströnd
- Fimmtudagur, 15. apríl 2010, Innlent Gosið náði upp á yfirborðið klukkan 8:30
- Mánudagur, 18. apríl 2011, Innlent Gagnrýna skopmynd
- Föstudagur, 29. apríl 2011, Innlent Færri ungar konur í fóstureyðingu
-
Fólk víða að minnast Houston
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði ōðruvísi biskup
-
Lík Houston flutt af hótelinu
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað




































