Snæfellsstofa opnuð á Skriðuklaustri
Anna Kristín Ólafsdóttir formaður stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs, Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og Agnes Brá Birgisdóttir þjóðgarðsvörður á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.
Í dag tók Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra formlega í notkun Snæfellsstofu á Skriðuklaustri, nýja gestastofu fyrir austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.
Við þetta tækifæri var einnig opnuð í Snæfellsstofu umhverfisfræðslusýningin „Veraldarhjólið“ sem fjallar um hringrás náttúrunnar með áherslu á samspil gróðurs og dýralífs á svæðinu. Auk sýningarinnar hýsir Snæfellsstofa upplýsinga- og þjónustumiðstöð fyrir ferðafólk og minjagripaverslun auk þess sem þar verða skrifstofur og vinnuaðstaða fyrir starfsfólk þjóðgarðsins.
„Opnun Snæfellsstofu er mikilvægur áfangi í uppbygginu Vatnajökulsþjóðgarðs en með henni er stigið stórt skref í fræðslu- og upplýsingamálum þjóðgarðsins. Gestastofum þjóðgarðsins fjölgar úr tveimur í þrjár og nú verða starfandi gestastofur á þremur af fjórum rekstrarsvæðum Vatnjökulsþjóðgarðs,“ segir Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra, í fréttatilkynningu.
Hún segir að auk þess sé nú brotið blað í byggingarsögu landsins, því Snæfellsstofa sé fyrsta umhverfisvottaða húsbygging á Íslandi.
Gestastofan að Skriðuklaustri er byggð samkvæmt teikningu Arkis arkitekta sem vann til fyrstu verðlauna í hönnunarsamkeppni um gestastofu sem efnt var til árið 2008. Einnig var efnt til samkeppni um nafn á gestastofuna og varð Snæfellsstofa fyrir valinu. Framkvæmdir við Snæfellsstofu hófust fyrir rúmu ári en fyrsta skóflustunga að byggingunni var tekin um miðjan apríl 2009. Alls er Snæfellsstofa um 700 fermetrar að stærð og nemur kostnaður við byggingu hennar um 350 milljónum króna, sem er samkvæmt þeim áætlunum sem gerðar voru að teknu tilliti til verðlagsþróunar, samkvæmt tilkynningu.
Innlent »
-
Fólk er undrandi og reitt
- „Þetta gengur ágætlega“
- LSR tapaði 101 milljarði
- LV tapaði 18 milljörðum á Kaupþingi
- Gæsluvarðhald vegna hnífstungu
- Ekki fleiri á nöglum
- Ræða þarf stjórnarkjör
- Fór í aðgerð eftir hnífstungu
- „Skýrslan kemur ekki á óvart“
- Hríðarveður og slæmt skyggni
- Kúlulánin komu á óvart
- Borginni mistekist við sameiningar
- 70 stöðvaðir í eftirliti
- Grindavík reynir að innheimta lán
- Mest tap af Baugi og Existu
- Nýr formaður Varðar
- Jóna Hrönn fékk köku ársins
- Bjartsýni í bland við bölsýni
- Endurskoða þarf lög um sjóðina
- Sætti ekki eftirliti
- Brotin skipulagðari en áður
- Flytja hönnunardeildina
- Banna aukabúnað í sláttuorf
- Óeðlilegt hjartalínurit algengt
- Herör gegn misneytingu á börnum
- Sinalco seldist upp
- Rekstur lífeyrissjóða skoðaður
- Kostnaður við Herjólf umfram heimildir
- Ræða sölu til að fjármagna lán
- Snjómokstur langt yfir áætlun
- Niðurstöður ómskoðunar rannsakaðar
- Ráðuneytið þarf að efla eftirlit
- Líti á flugvöllinn sem tækifæri
- Klofin þjóð í afstöðu til ákæru
- Áfram í haldi vegna smygls
- Auka þarf rannsóknarheimildir
- Útibú umboðsmanns skuldara á Akureyri
- Greiðir 5,2 milljarða í þróunarsjóð EFTA
- Harður árekstur við Grundartanga
- Allir sammála um endurskoðun
- Kannabisræktun á eyðibýli
- Vilja dýpri umræðu um aðildarferlið
- Meðferðin nú veitt á Íslandi
- Illugi: Bankarnir og skuldir heimilanna
- Skurðdeild lokað vegna sýkingar
- Kærð fyrir ólögmæta háttsemi
- Barist gegn barnaníði á heimsvísu
- Páskasúkkulaði frá ABC
- Sjóvá endurgreiðir 381 milljón
- Bilun á netsambandi Vodafone
- Hallur Hallsson: RÚV málpípa valdhafanna
- Vilja endurnýja sýningarbúnað
- Hesthús verði skattlögð eins
- Grafalvarleg staða Sandgerðisbæjar
- Landi fannst í heimahúsi
- Steinn Jónsson: PIP-púðar og gæðavottorð
- Snjór á Holtavörðuheiði
- E-töflur á Akureyri
- Gistinóttum fjölgar um 27% í desember
- Ferðamönnum fjölgar um 17,5%
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 30. janúar 2010, Innlent Guðmundur Rúnar efstur í Hafnarfirði
- Sunnudagur, 28. febrúar 2010, Innlent Árni Sigfússon með 92% atkvæða
- Laugardagur, 27. febrúar 2010, Innlent Árni með 90% atkvæða
- Föstudagur, 27. maí 2011, Innlent Kraftmiklir kassabílar kepptu
- Sunnudagur, 24. janúar 2010, Innlent Guðmundur sigraði í prófkjöri Framsóknar
-
Átök fram á nóttu í Egyptalandi
-
Drottning plantar afmælistré
-
Sýrlenskar konur mótmæla líka
-
Meira en 200 látnir vegna kulda
-
Verðum að læra af reynslunni
-
Sturtuðu mold á götur Parísar
-
Fólk er undrandi og reitt
-
Hverjir ná árangri á Twitter?




































