Tilbúið til viðræðna um kosti sameiningar

mbl.is/Eggert

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að kannaðir verði kostir sameiningar sveitarfélaganna og lýsir sig tilbúið til viðræðna við bæjarstjórn Álftaness.

Fram kemur í tilkynningu frá borgaryfirvöldum að í skoðanakönnun um vilja Álftnesinga til sameiningar sem haldin hafi verið þann 6. mars sl. hafi komið fram að flestir íbúar vilji sameinast Garðabæ eða Reykjavík. Í framhaldi af því hafi bæjarstjórn Álftaness óskað eftir viðræðum við fulltrúa Reykjavíkurborgar um vilja og mögulega hagræðingu af sameiningu við Reykjavík.

„Í samstarfssamningi Samfylkingar og Besta flokksins er lögð áhersla á að Reykjavík taki forystu í umræðum um nánari samvinnu og sameiningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Sameining Reykjavíkur og Álftaness gæti verið fyrsta skrefið í átt að markvissari og nánari samvinnu og sameiningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Í þeirri sýn felst jafnframt að sjálfstæði hverfa í ákvörðunum, þjónustu og rekstri verði aukið,“ segir í tilkynningu.

„Það er mér mikið að skapi að tala við sem flesta og að allir séu glaðir,“ er haft eftir Jóni Gnarr, borgarstjóra Reykjavíkur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert