Fréttaskýring: Yfir hundrað ný rými en samt enginn viðbót
Anna Sigríður Einarsdóttir
annaei@mbl.is
90 rými til viðbótar verða tekin í notkun hjá Mörk – hjúkrunarheimili Grundar við Suðurlandsbraut nú í sumarlok. „Við fáum lyklana afhenta 1. júlí og byrjum að taka á móti fólki 3. ágúst,“ segir Gísli Páll Pálsson, framkvæmdastjóri heimilisins og kveður mikla tilhlökkun ríkja.
Bætt aðstaða fyrir þá sem hafa vistun
Þó 135 ný rými séu tekin í notkun á þessu ári fjölgar hjúkrunarrýmum á höfuðborgarsvæðinu ekki. Mörkin tekur við fólki af Vífilsstöðum og Víðinesi, sem lokað verður 1. september, sem og 18 einstaklingum sem nú dvelja á Landspítalanum. Í Boðaþingið flutti hins vegar heimilisfólk af Hrafnistu í Reykjavík og dvalarheimili í Kópavogi.Sama á við um stærsta hluta þeirra hjúkrunarrýma sem reist verða á næstu árum. Félags- og tryggingamálaráðuneytið gerði í maímánuði samninga við bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ, Hafnarfirði, Garðabæ, Reykjanesbæ, Borgarbyggð, Fjarðarbyggð og Akureyri um byggingu 287 nýrra hjúkrunarrýma. Sveitarfélögin byggja hjúkrunarheimilin með láni frá Íbúðarlánasjóði og sjá um reksturinn. Ríkið greiðir síðan sinn hluta byggingarkostnaðar og vaxta, 85%, til baka á fjörutíu árum í formi leigu.
Samkvæmt upplýsingum frá sveitarfélögunum teljast 93 þessara hjúkrunarrýma sem viðbót við þau sem þegar eru í notkun og verða 55 þeirra á höfuðborgarsvæðinu. Mest munar væntanlega um 30 rými í Hlaðhömrum í Mosfellsbæ sem hefjast á handa við byggingu á í haust. En ekkert hjúkrunarheimili fyrir aldraða er starfrækt í sveitarfélaginu í dag. „Það verður kærkomið að fá hjúkrunarheimilið því Mosfellsbæingar hafa til þessa þurft að leita út fyrir sveitarfélagið,“ segir Jóhanna Hansen bæjarverkfræðingur. Gert er ráð fyrir að byggingu verði lokið vorið 2012 og er kostnaður áætlaður 940 milljónir kr.
Boðaþing stækki um helming
Kostnaðarmat félags- og tryggingamálaráðuneytisins vegna byggingar hjúkrunarrýmanna nemur 9,5 milljarði kr. samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu, en auk áður nefndra hjúkrunarheimila hafa einnig verið uppi áætlanir á Seltjarnarnesi um byggingu 30 hjúkrunarrýma. Samningar þess efnis hafa þó ekki enn verið undirritaðir.Síðari hluti byggingar hjúkrunarheimilisins að Boðaþingi í Kópavogi er ekki á borði ráðuneytisins. En áætlanir eru uppi um að stækka þetta nýja heimili um helming og mun það þá geta hýst 88 einstaklinga. Ekki liggur hins vegar fyrir hvort rými fyrir nýja vistmenn verði í byggingunni þegar hún rís eða hvort húsið muni hýsa vistmenn annarra hjúkunarheimila í eigu Hrafnistu. „Það liggur ekki fyrir á þessu stigi,“ sagði viðmælandi blaðsins. „Framkvæmdir eru ekki hafnar og ekki vitað hvenær þær gera það, þó vissulega vonumst við til að geta lokið byggingu Boðaþings á næstu 2-3 árum.“






































