Fleiri senda út óbreytta seðla
Byr er ekki eina fjármálafyrirtækið sem hefur sent frá sér óbreytta greiðsluseðla vegna fasteignalána sem eru tengd erlendri mynt. Líkt og fram hefur komið þá fjalla dómarnir tveir sem vísað er til um bílalán ekki fasteignalán.
Yfirlýsing Landsbankans vegna dóms Hæstaréttar í máli
SP-Fjármögnunar frá 16. júní:
„Samkvæmt dómi Hæstaréttar í dag, 16. júní, eru lán SP-Fjármögnunar, sem er í eigu Landsbankans, talin vera íslensk lán og gengistrygging þeirra dæmd ólögmæt. Dómur Hæstaréttar nær til gengistryggðra lána en ekki lána sem veitt eru í erlendri mynt.
Á þessu stigi er ekki vitað nákvæmlega hversu mikil áhrif dómurinn hefur á eignir SP-Fjármögnunar þar sem ekki er skorið úr um hvernig reikna á lánin. Ákveðin óvissa er því enn til staðar og er mikilvægt að henni verði eytt hið fyrsta.
Vegna óvissu við útreikning á gengistryggðum lánum SP-Fjármögnunar telur Landsbankinn mikilvægt að unnið verði að sátt í samstarfi við löggjafar- og framkvæmdavald og alla hagsmunaaðila.
Landsbankinn telur eftir sem áður að erlend lán bankans séu í samræmi
við íslensk lög. Þessi dómur mun hafa áhrif á eiginfjárstöðu
SP-Fjármögnunar, en staða Landsbankans er eftir sem áður sterk"
„Í kjölfar niðurstöðu Hæstaréttar um lögmæti gengistryggðra lána vill Arion banki koma því á framfæri að engin gengistryggð bílalán eru hjá bankanum. Það er mat lögfræðinga bankans að lánasamningar Arion banka séu löglegir. Bankinn mun kynna sér dóm Hæstaréttar ítarlega á næstu dögum. Ljóst er að niðurstaða í þessu máli mun ekki hafa nein áhrif á stöðu bankans.
Arion banki vill árétta við viðskiptavini sína að þeir sem hafa nýtt sér lausnir bankans hafa ekki firrt sig betri rétti."
Íslandsbanki Fjármögnun frestar útsendingu greiðsluseðla
„Vegna óvissu sem ríkir um hvernig endurreikna skal höfuðstól og mánaðarlegar greiðslur af gengistryggðum bílalánum og bílasamningum í kjölfar dómsúrskurðar Hæstaréttar þann 16. júní síðastliðinn hefur Íslandsbanki Fjármögnun ákveðið að fresta útsendingu greiðsluseðla vegna gengistryggðra bílalána og bílasamninga um næstu mánaðarmót. Þetta kann að hafa í för með sér að leigutími gengistryggðra bílalána og bílasamninga lengist um einn mánuð.
Óski viðskiptavinir eftir því að greiða afborgun þann 1. júlí samkvæmt upphaflegum samningsskilmálum er þeim bent á síðu Íslandsbanka Fjármögnunar - islandsbanki.is/fjarmognun
Jafnframt hefur Íslandsbanki tímabundið hætt öllum innheimtuaðgerðum vegna gengistryggðra bílalána og bílasamninga.
Íslandsbanki vill ítreka fyrri yfirlýsingar um að þeir viðskiptavinir sem þegar hafa nýtt sér úrræði bankans vegna gengistryggðra bílalána hafa ekki fyrirgert mögulegum betri rétti sínum."






































