Lítil viðbrögð frá Arion banka
„Í ljósi þess að bankinn ætlar ekki að aðhafast meira er ein leið lántakenda að leita til dómstóla,“ segir Brynhildur Pétursdóttir, fulltrúi hjá Neytendasamtökunum en lántakendur hjá Arion banka hafa ekki fengið neina leiðréttingu eftir að áfrýjunarnefnd neytendamála úrskurðaði í janúar að bankinn hefði brotið gegn lögum um neytendalán.
Í frétt á heimasíðu Neytendasamtakanna segir að þar sem frestur bankans til að skjóta úrskurðinum til dómstóla sé liðinn sé augljóst að bankinn ætli ekki lengra með málið.
Arion banki uni þar með niðurstöðunni og viðskiptavinir bankans hljóti því að eiga rétt á endurgreiðslu ofgreiddra vaxta og að vextir verði færðir í upphaflegt horf.
Hins vegar komi viðbrögð bankans á óvart, þeir viðskiptavinir sem tekið hafi gengistryggð lán hafi einungis fengið bréf frá bankanum í mars þar sem vaxtasamsetningin á lánum er útskýrð nánar.
„Virðist bankinn túlka ákvörðun Neytendastofu á þá leið að einungis hafi verið um smávægilegan misskilning á ferð sem rétt sé að leiðrétta og upplýsa viðskiptavini um. Að öðru leyti lætur bankinn eins og ekkert hafi í skorist og hann hafi engin lög brotið og því sé engrar leiðréttingar þörf.“
Þá kemur fram í fréttinni að Neytendasamtökin þekki engin önnur dæmi þess að lánastofnanir sendi viðskiptavinum slíkar útskýringar löngu eftir að skrifaði hafi verið undir lánasamning.
Forsaga málsins er sú að í ágúst í fyrra fengu Neytendasamtökin nokkur mál inn á borð til sín vegna myntkörfulána Kaupþings og eftir að hafa skoðað málin tóku samtökin undir athugasemdirnar og sendu þau til Neytendastofu, sem hefur eftirlit með lögum um neytendalán.
Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að bankinn hefði brotið gegn lögum, Kaupþing áfrýjaði niðurstöðunni til áfrýjunarnefndar neytendamála sem staðfesti niðurstöðu Neytendastofu.
Fréttin á heimasíðu Neytendasamtakanna
Innlent »
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 1. október 2009, Innlent Skilmálar myntkörfulána voru ólögmætir
- Miðvikudagur, 11. nóvember 2009, Innlent Kaupþing höfðar mál vegna erlendra lána
- Fimmtudagur, 17. febrúar 2011, Innlent Bannað að auglýsa „enga vírusa"
- Þriðjudagur, 4. janúar 2011, Innlent Lýsing ber ábyrgð á mistökum
- Mánudagur, 23. ágúst 2010, Innlent Ætlar að kæra úrskurð Neytendastofu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































