Regluverki verði breytt í tveimur áföngum

Hermann Sæmundsson, skrifstofustjóri sveitarstjórnarskrifstofu ráðuneytisins, Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri, Flosi Eiríksson, formaður starfshópsins, og Kristján L. ... stækka

Hermann Sæmundsson, skrifstofustjóri sveitarstjórnarskrifstofu ráðuneytisins, Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri, Flosi Eiríksson, formaður starfshópsins, og Kristján L. Möller, samgöngu og sveitarstjórnarráðherra.

Starfshópur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um heildarendurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga leggur til að regluverki sjóðsins verði breytt í tveimur áföngum. Fyrst verði tekið upp nýtt kerfi útgjaldajöfnunar og síðan gerð grundvallarbreyting á jöfnunarkerfinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Þar segir að umfang Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hafi aukist mikið undanfarin ár. Ráðstöfunarfé sjóðsins hafi verið um tveir milljarðar króna árið 1990 en árið 2009 hafi það verið um 18 milljarðar. Gert sé ráð fyrir að árið 2010 verði það tæplega 20 milljarðar. Með auknum verkefnum hafi reglur sjóðsins orðið æ flóknari og yfirsýn yfir grunnhlutverk sjóðsins að nokkru leyti tapast.

Starfshópurinn lagði til grundvallar að skýra þyrfti jöfnunarhlutverk sjóðsins og aðskilja þann þátt starfseminnar frá öðrum verkefnum sem sjóðnum hafa verið falin. Það er mat starfshópsins að afar brýnt sé að gera skýran greinarmun á þeim verkefnum sjóðsins sem eru annars vegar jöfnunarverkefni og hins vegar önnur verkefni, sem löggjafinn hefur falið sjóðnum að sinna. Fyrri þátturinn er meginviðfangsefni Jöfnunarsjóðs, að jafna útgjalda- og tekjumun sveitarfélaga og tryggja að allir íbúar landsins eigi kost á tiltekinni gunnþjónustu. Seinni þátturinn eru viðbótarverkefni sem sjóðnum hefur verið falið að sinna af ýmsum ástæðum en hafa í sjálfu sér lítið með jöfnun að gera.

Starfshópurinn leggur til að tekjujöfnunarframlag verði lagt niður í núverandi mynd og tekið upp nýtt fyrirkomulag útgjaldajöfnunar. Fyrst um sinn verði byggt á grunni núverandi kerfis, sem aðgreinir einstakar jöfnunaraðgerðir, t.d. jöfnun vegna grunnskóla. Leiðin er skilgreind  í skýrslunni sem valkostur 2. Jafnframt kynnir hópurinn leið sem felur í sér grundvallarbreytingu á jöfnunarkerfinu og yrði næsta skref í umbreytingum Jöfnunarsjóðsins, í framhaldi af hinu fyrra. Hér er um nýja framsetningu að ræða sem myndi breyta verulega þeim aðferðum sem byggt er á í dag og viðhorfum til jöfnunarkerfisins. 

Aðferðin er skilgreind sem valkostur 3 og felst nánar í grófum dráttum í því að:

  • Öll framlög sjóðsins sem hafa jöfnunartilgang, þ.e. öll framlögin í svokallaðri A-deild, verði sameinuð í eitt samræmt jöfnunarframlag til sveitarfélaga.
  • Þróað verði nákvæmt útgjaldamælingarkerfi sem gefur nauðsynlegan grunn til að skilgreina og meta útgjaldaþörf sveitarfélaga vegna lögbundinna og venjubundinna verkefna, sem og vegna annarra tiltekinna þátta sem hafa áhrif á útgjaldaþörf.
  • Tekið verði mið af hámarksskatttekjum einstakra sveitarfélaga af útsvari og fasteignaskatti en þörf fyrir framlög úr Jöfnunarsjóði ræðst af því hve mikið vantar upp á til að tekjur dugi fyrir skilgreindum, mældum gjöldum. Ef útgjaldaþörf er minni en skatttekjur verði ekki veitt framlag.


Þær breytingar sem starfshópurinn leggur til með valkosti 2 er að mati starfshópsins góður áfangi að nýju jöfnunarkerfi, valkosti 3, en nýtt jöfnunarkerfi þarf að þróa í góðu samstarfi við hagsmunaaðila.

Ráðherra skipaði starfshópinn í ársbyrjun 2009 og var hlutverk hans að endurskoða laga- og reglugerðarákvæði um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Hélt hann 33 fundi auk þess sem fulltrúar hans sátu ársþing landshlutasamtaka sveitarfélaga á liðnu hausti. Hópurinn skilaði tillögum sínum nú í júní.

Starfshópinn skipuðu: Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi í Kópavogsbæ sem var formaður hópsins, Björg Ágústsdóttir, lögfræðingur, MPA, fyrrverandi bæjarsjóri í Grundarfjarðarbæ, og Guðmundur Bjarnason, fyrrverandi bæjarstjóri Fjarðabyggðar. Með hópnum unnu Hermann Sæmundsson, skrifstofustjóri í ráðuneytinu, Elín Pálsdóttir, forstöðumaður Jöfnunarsjóðs, Halldór V. Kristjánsson, sérfræðingur hjá Jöfnunarsjóði, Gunnlaugur Júlíusson, sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, og Guðni Geir Einarsson sérfræðingur. Einnig starfaði með hópnum Jóhannes Á. Jóhannesson, sérfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.


PDF-skrá Skýrsla starfshópsins
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Kynningartilboð á garðhúsum!!
Kofar og hús eru með kynningartilboð á garhúsum. Kynntu þér málið á www.kofarog...
Fleetwood Cheyenne 2006 - Tilboð 1.450.000 stgr.
Fleetwood Cheyenne 10 fet. Mjög vel með farið fellihýsi - lítið notað, nýskr. 20...
Toyota Carina E til sölu - Skoðaður 2013
Árgerð 1997, Vínrauð, 1800vél, 4 dyra, sjálfskipt. Ekin 219 þús. km. Búið að s...
PING G2
Ping G2 járn, 4HL-5HL-6-7-8-9-W-S-L og 60°(ekki Ping) Ping Trailblazer kerrupok...
 
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...