Samiðn gagnrýnir Landsvirkjun

Hörður Arnarsson forstjóri Landsvirkjunar kynnti Búðarhálsvirkjun fyrir fréttamönnum í vetur
Hörður Arnarsson forstjóri Landsvirkjunar kynnti Búðarhálsvirkjun fyrir fréttamönnum í vetur mbl.is/Rax

Stjórn Samiðnar mótmælir harðlega vilja Landsvirkjunar til að hleypa kínverskum verktökum að framkvæmdum vegna Búðarhálsvirkjunar og hefur sent stjórn Landsvirkjun ályktun þess efnis.

Um síðastliðna helgi auglýsti Landsvirkjun eftir tilboðum í þrjá verkhluta Búðarhálsvirkjunar. Samkvæmt auglýsingunni skal skila tilboðum fyrir 20. ágúst. Gangi ferlið samkvæmt áætlun geta framkvæmdir hafist í október á þessu ári. Stefnt er að því að ljúka verkinu síðla árs 2013. Hvergi í auglýsingunni kemur fram að kínverskir verktakar annist verkið.

Hins vegar var undirritaður viljayfirlýsing um samstarf þann 9. júní sl. á milli Landsvirkjunar annars vegar og China International Water & Electric Corporation (CWE) og Export-Import Bank of China (Exim Bank) hins vegar.

„Yfirlýsingin felur ekki í sér skuldbindingu af hálfu þessara þriggja aðila en í henni kemur fram áhugi CWE á að bjóða í framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun sem og áhugi Landsvirkjunar á að fá tilboð frá fyrirtækinu.

Þá lýsir Exim Bank yfir áhuga á að fjármagna hluta verksamninga sem CWE kann að vinna fyrir Landsvirkjun að undangengnu útboði.

CWE er eitt stærsta verktakafyrirtæki Kína og er hér á landi ásamt fjölmennri kínverskri sendinefnd. Export-Import Bank of China er í eigu kínverska ríkisins og hefur meðal annars það hlutverk að styðja við kínversk fyrirtæki í útflutningi," segir í frétt á vef Landsvirkjunar.

„Samiðn fagnar ákvörðun Landsvirkjunar um að bjóða út byggingu Búðarhálsvirkjunar enda mun framkvæmdin  hafa mikil og jákvæð áhrif á atvinnuástandið í bygginga- og mannvirkjagerð verði skynsamlega að verki   staðið.

Nú hafa borist fréttir af viðræðum Landsvirkjunar og kínverska fyrirtækisins CWE um aðkomu þess að framkvæmdunum og hefur Landsvirkjun lýst sérstökum áhuga á að fá tilboð frá CWE í framkvæmdina.

Samiðn lýsir áhyggjum sínum af sérstökum vilja Landsvirkjunar til að fá CWE að framkvæmdunum þar sem reynslan segir okkur að kínversk verktakafyrirtæki muni fyrst og fremst nýta sinn eigin mannskap við framkvæmdirnar sem þessar. Verði það  niðurstaðan munu þau jákvæðu áhrif sem framkvæmdin getur haft á íslenskt efnahagslíf nánast þurrkast út.

Þessum áformum Landsvirkjunar  að sniðganga íslenska verktaka mótmælir Samiðn harðlega og mun beita öllum sínum áhrifum til að koma í veg fyrir að veitt verði atvinnuleyfi vegna byggingu virkjunar.

Íslensk verktakafyrirtæki búa yfir mikilli reynslu við byggingu vatnsfallsvirkjana  svo ekki er hægt að skýla sér á bak við að það sé verið að ná í sérfræðiþekkingu sem ekki er til staðar hérlendis.

Samiðn skorar á Landsvirkjun að standa þannig að verki að sem mestar líkur séu á að verkefni við byggingu Búðarhálsvirkjunar falli í hendur íslenskra verktaka og skapi sem flest störf fyrir Íslendinga og verði með þeim hætti kröftug innspýting í íslenskt efnahagslíf.

Tilboðsverð  á íslenskum verktakamarkaði eru mjög hagkvæm og því engin ástæða til að kalla eftir tilboðum frá Kína til að þvinga verð enn frekar niður," segir í bréfi Samiðnar til Landsvirkjunar.

Landsvirkjun var gert að bjóða verkið út að nýju þar sem fyrirtækið hafði ekki auglýst það á evrópska efnahagssvæðinu líkt og íslensk lög gera ráð fyrir.

Auglýsing Landsvirkjunar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert