Bjarni Benediktsson kjörinn formaður

Bjarni Benediktsson og Pétur H. Blöndal tókust í hendur uppi …
Bjarni Benediktsson og Pétur H. Blöndal tókust í hendur uppi á sviði eftir að niðurstöður í formannskjöri láu fyrir. mbl.is/Kristinn

Bjarni Benediktsson var rétt í þessu endurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins með 62% greiddra atkvæða á landsfundi sem stendur yfir í Laugardalshöll. Greidd voru 925 atkvæði og féllu 573 Bjarna í skaut, en 281 greiddu atvæði með Pétri H. Blöndal. Auð atkvæði voru 50.

„Við skulum láta þennan dag verða vendipunkt í sögu Sjálfstæðisflokksins,“ sagði Bjarni við dynjandi lófatak viðstaddra.

Hann þakkaði Pétri Blöndal fyrir „afar snarpa en drengilega kosningabaráttu“ og sagði það ekki koma á óvart að þetta margir skyldu treysta Pétri. Því næst kallaði hann Pétur upp á svið og við mikinn fögnuð fundargesta.

Pétur óskaði Bjarna til hamingju með sigur í lýðræðislegri kosningu og sagði að það gleddi hann hve margir studdu hann. „Ég mun standa þétt við bakið á Bjarni Benediktssyni í störfum hans.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert