Jónsmessuferð á Fimmvörðuháls

Göngufólkið var komið að Magna (hægra megin) og Móða (vinstra …
Göngufólkið var komið að Magna (hægra megin) og Móða (vinstra megin) um hánóttina. Skúli H. Skúlason

Ferðafélagið Útivist hélt sína árlegu Jónsmessuhátíð um helgina í Básum á Goðalandi, með næturgöngu upp á Fimmvörðuháls. Að þessu sinni var brugðið út frá hefðbundinni gönguleið sem hefur verið yfir Fimmvörðuháls frá Skógum og þess í stað lögð áhersla á skoðunarferð á eldstöðvarnar á hálsinum.

Gengið var frá Básum á föstudagskvöldi upp Morinsheiði og Bröttufönn að gígunum Magna og Móða. Þá var haldið niður í Hvannárgil og hrauntungur þar skoðaðar.

Undir morgun kom hópurinn aftur í Bása en veður var stillt og nóttin björt.  Á laugardagskvöldinu var haldin vegleg grillveisla með varðeldi og fjöldasöng í fínu veðri.

Að sögn Skúla H. Skúlasonar, starfsmanns Útivistar, er mikill munur á því umhverfi sem blasir við á Markarfljótsaurum og aðstæðum í Básum. Þótt sjá megi öskulag við Gígjökul og næsta umhverfi sé allt aðra sögu að segja í Básum og skóglendinu þar.

Það sé því ástæðulaust fyrir fólk að hika við að ferðast inn í Bása og ganga upp á Fimmvörðuháls

Hins vegar sé rétt að hafa í huga að í norðan strekkingi og þurrviðri má búast við öskufjúki uppi á hálsinum og því enn mikilvægara en áður að skoða veðurspá vel fyrir brottför.

Einnig skyldu menn fara varlega um gosstöðvarnar og fylgja þar stikuðum og merktum leiðum.

Séð ofan í glóð rétt við gígana
Séð ofan í glóð rétt við gígana Skúli H. Skúlason
Grillveisla í Básum í stilltu veðri á laugardagskvöld
Grillveisla í Básum í stilltu veðri á laugardagskvöld Skúli H. Skúlason
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert