Um 800 milljónir vegna eldgosanna

Eldgos í Eyjafjallajökli stækka

Eldgos í Eyjafjallajökli mbl.is/RAX

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum síðastliðinn föstudag að veita 791,7 milljónir króna til endurreisnar og vegna neyðaraðgerða í kjölfar eldgosanna í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi.

Styðja á við uppbyggingarstarf á eldgosasvæðinu og treysta enn frekar störf þeirra sem komið hafa að neyðaraðgerðum, öryggismálum og endurreisn í kjölfar hamfaranna.

Fumlaus viðbrögð þeirra sem eiga hlut að máli

„Eldgosin hafa haft víðtæk áhrif á íslenskt samfélag sem og alþjóðlegar flugsamgöngur. Viðbrögð þeirra sem hlut eiga að máli hafa verið fumlaus, traust og vel skipulögð. Samstarf bæði innan og utan stjórnsýslunnar hefur verið til fyrirmyndar og sýnir glöggt styrkleika þjóðarinnar til að takast á við afleiðingar náttúruhamfara. Enn eru allir í viðbragðsstöðu og fylgjast áfram með þróuninni á svæðinu," segir í tilkynningu frá forsætisráðherra.

Stærsta einstaka viðbótarframlagið er til Bjargráðasjóðs, 190 milljónir króna, en heildarkostnaður sjóðsins vegna eldgosanna er metinn á 300 milljónir króna.

Þá fá Landgræðslan, Vegagerðin, Veðurstofan, almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra, löggæslan, Landhelgisgæslan, Rauði kross Íslands, Slysavarnarfélagið Landsbjörg, Jarðvísindastofnun Háskólans, Flugstoðir, heilbrigðisstofnanir og fleiri umtalsvert fé til að sinna störfum sínum í tengslum við eldgosin.

Jafnframt var samþykkt að styðja við bakið á sveitarfélögum á eldgosasvæðinu m.a. vegna tímabundinna húsnæðisúrræða fyrir íbúa í Rangárþingi eystra, Mýrdalshreppi og Skaftárhreppi. Líklegt má telja að Viðlagatrygging bæti ýmsan tilfallandi kostnað sveitarfélaganna til að mynda vegna hreinsunar. Brýn verkefni á næstunni verða m.a. við framkvæmdir og lagfæringar á varnargörðum við Markarfljót og Svaðbælisá auk aðgerða við að hefta öskufok á svæðinu.

Ríkisstjórnin fól fimm ráðuneytisstjórum að fara yfir allan kostnað sem tengja mætti neyðaraðgerðum á gossvæðinu í kjölfar eldgosanna. Fjárframlög til stofnana byggja á niðurstöðum þeirra og tillögum, sem taka mið af því hvaða kostnaður teljist óhjákvæmilegur vegna neyðarviðbragða og annarra nauðsynlegra aðgerða. Hópurinn starfar áfram þar sem ákveðna þætti þarf að skoða nánar á síðari stigum.
 
Heildarkostnaðarmat vegna tjóns af völdum eldgosanna í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi liggur ekki endanlega fyrir en þó er komin nokkuð góð mynd á umfangið. Hluti kostnaðar af eldgosunum leggst á Viðlagatryggingu og Bjargráðasjóð sem, eins og að ofan er getið, fékk viðbótarframlag til starfsemi sinnar.

Ólíkt kostnaðinum vegna jarðskjálftans árið 2008 þá liggur stærstur hluti kostnaðar ríkissjóðs nú hjá einstaka stofnunum. Við þau útgjöld ráða þær ekki án viðbótarfjárheimilda. Hins vegar skal nýta fjárheimildir ársins með forgangsröðun verkefna svo sem frekast er kostur. Mál er varða tjón einstaklinga eða tekjutap rekstraraðila fara til skoðunar hjá Viðlagatryggingu og Bjargráðasjóði.

Á næstunni opnar almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra í samráði við ráðuneytin að nýju þjónustumiðstöð á eldgosasvæðinu til að samræma viðbrögð og úrlausn verkefna sem framundan eru í sumar og haust. Almannavarnadeild ræður verkefnisstjóra til að annast daglegan rekstur þjónustumiðstöðvarinnar," segir í tilkynningu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Óska eftir sparneytnum smábíl ca. árg. 05-09.
Óska eftir sparneynum bíl td. Toyota Yaris, corolla, Honda Jazz, Golf, Getz.... ...
Vilt Þu Aukatekjur
1 ár hysing + .com url + website builder = 25000 isk http://www.extrapaid.com/...
Ruggustóll
Stór og flottur ruggustóll til sölu. Verð 30 þús. kr. Uppl. mit@simnet.is....
Honda Civic ES 2006
Honda Civic ES árgerð 2006 svartur. Ekinn aðeins 61 þús. sjálfskiptur, topplúga,...
 
Samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Ken Lock...
Markaðsmaður opnar sig !
Stjórnunarstörf
Markaðsmaður opnar sig Hef marg...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...