Búist við fjölmenni að Hamragörðum
Búist er við að á bilinu tvö til þrjú þúsund gestir muni mæta á landkynningartónleika, sem hafa yfirskriftina Iceland Inspires, sem verða haldnir á fimmtudagskvöld að Hamragörðum undir Eyjafjöllum, skammt frá Seljalandsfossi. Lögreglan segir allan undirbúning hafa gengið vel.
Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli, segir í samtali við mbl.is að lögreglan sé í stakk búin til að sinna eftirliti og gæslu á svæðinu.
Aðspurður segir Sveinn Kristján að öll aðstaða muni verða til
fyrirmyndar, s.s. salernisaðstaða. „Það verður bætt við hana og það
verður fín aðstaða,“ segir hann í samtali við mbl.is. Þá verði einnig
seldar léttar veitingar.
Blásið verður til þriggja klukkustunda langrar tónlistarveislu en tónleikarnir verða einn af hápunktum átaksins Inspired by Iceland. Tónleikarnir eru öllum opnir og ókeypis. Svæðið verður opnað kl. 19, tónleikarnir hefjast klukkustund síðar og standa til kl. 23.
Að Hamragörðum koma m.a. fram breska sveitin Spiritualized með íslenskri
strengjasveit og kór, Seabear, Amiina, Dikta, Steindór Andersen, Lay
Low, Hilmar Örn Hilmarsson, Mammút, Páll á Húsafelli og Parabólur ásamt
fleirum. Þá verða einnig sýndar í beinni útsendingu á netinu mynd- og
hljóðupptökur með Damien Rice, Glen Hansard, Gus Gus, Hjaltalín, For a
Minor Reflection, Retro Stefson o.fl.
„Við erum ósköp spakir. Það hefur meiri tími farið í að undirbúa helgina, þegar það verður hátíð í Galtalæk,“ segir Sveinn Kristján, sem svarar því játandi að menn líti á tónleikana á fimmtudagskvöld sem létta upphitun.
Lögreglan á von á svipuðum fjölda þangað um helgina. Að sögn Sveins verður gæslan þar mun öflugri. Fleiri lögreglumenn verði á svæðinu, en lögreglan á Hvolsvelli mun njóta aðstoðar lögreglumanna úr öðrum embættum.
Innlent »
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 30. júní 2010, Innlent Tónleikar færðir vegna veðurs
- Fimmtudagur, 24. desember 2009, Innlent Mikil umferð við kirkjugarðana
- Sunnudagur, 19. júní 2011, Innlent Fá endurgreiðslu og boðsmiða
- Föstudagur, 24. desember 2010, Innlent Sýni biðlund í kirkjugörðunum
- Laugardagur, 9. júlí 2011, Innlent Sól og blíða á Bestu útihátíðinni
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































