Er í miklum persónulegum ábyrgðum
Guðmundur Týr Þórarinsson, forstöðumaður Götusmiðjunnar, fagnar því að Barnaverndarstofa hafi séð að sér og hyggist halda áfram rekstri meðferðarheimilis fyrir börn í vímuefnaneyslu. Hann segir fjármál Götusmiðjunnar öllum opin og að hann sé í miklum persónulegum ábyrgðum. Hann hvetur forstöðumann Barnaverndarstofu að kæra sig. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Guðmundur Týr hefur sent frá sér.
„Ég fagna því að Barnaverndarstofa hafi séð að sér og hyggist halda áfram rekstri meðferðarheimilis fyrir börn í vímuefnaneyslu líkt og skilja má af fréttum í dag. Þörfin er brýn því þetta er barátta barna og aðstandenda þeirra upp á líf og dauða.
Það er það sem skiptir mestu máli, ekki persóna mín eða Braga Guðbrandssonar forstjóra Barnaverndarstofu. Jafnframt harma ég að Bragi skuli halda áfram málarekstri vegna málefna Götusmiðjunnar á opinberum vettvangi. Nú síðast með því að sverta enn frekar æru mína með meiðandi ummælum í fjölmiðlum.
Það er klárlega ekki til þess fallið að bæta hag barnanna. Upphaf þessa máls má rekja til þess að starfsmaður Götusmiðjunnar var áminntur í starfi og var hann beðin um að víkja af staðnum þar sem hann neitaði að hlýða fyrirmælum. Hann var ekki sáttur við þá ráðstöfun og snéri sér til Barnaverndarstofu.
Bragi Guðbrandsson var þá að leita leiða til þess að loka Götusmiðjunni og taka yfir rekstur hennar. Í stað þess að gera það í sátt við mig valdi hann þá leið að taka upp ásakanir reiðs starfsmanns og fara með í fjölmiðla. Þannig átti að fara að æru minni og losa ríkið við skuldbindingu gagnvart mér og skilja mig eftir með skuldir Götusmiðjunnar.
Bragi gerðist rannsakandi, feldi dóm og sá um refsingu. Ég hef í 15 ár helgað líf mitt baráttunni gegn vímuefnaneyslu barna og lagt í það allt sem ég á. Ég hef byggt upp Götusmiðjuna eins vel og ég get og kann og hefur hún verið vel rekin og skilað góðum árangri. Um árangurinn geta fyrrum skjólstæðingar borið vitni um.
Fjármál Götusmiðjunnar eru öllum
aðgengileg og er rekstur hennar í jafnvægi. Ég er hinsvegar í stórum
persónulegum ábyrgðum. Um störf mín og verk má sjálfsagt deila líkt og um
störf okkar flestra. Störf mín eru ekki hafin yfir gagnrýni.
Það er hins vegar með öllu fráleitt að ég hafi hótað börnunum limlestingum
og ofbeldi líkt og Bragi heldur fram. Þetta eru alvarlegar ásakanir og hef
ég hvatt Braga til þess að kæra til lögreglu. Hann hefur ekki orðið við því
og spyrja má af hverju," segir í yfirlýsingu frá Guðmundi Tý.





































