Stal þremur vodkaflöskum

stækka

mbl.is/Golli

Karlmaður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Austurlands dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir innbrot og þjófnað í verslun ÁTVR á Höfn í Hornafirði. Stal maðurinn, í félagi við annan þremur vodkaflöskum að andvirði rúmar 16 þúsund krónur. Hann var sýknaður af skaðabótakröfu ÁTVR og Sjóvár en skaðabótakrafan hljóðaði upp á 332 þúsund krónur. Maðurinn var á skilorði er hann braust inn í verslun ÁTVR og á að baki langan brotaferil.

Maðurinn játaði brot sitt en hann hefur frá árinu 2000 til ársloka 2009 sextán sinnum verið dæmdur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlögum, þar af tíu sinnum fyrir auðgunarbrot eða tilraun til slíkra brota. 

Síðast hlaut hann dóm 22. desember 2009 fyrir eignaspjöll og tilraun til þjófnaðar, með því að brjótast inn lyfjaverslun, en hann hlaut einnig tvo aðra dóma fyrir auðgunarbrot á því ári og var m.a. í dómi 8. janúar 2009 dæmdur fyrir að hafa brotist inn í fyrirtæki ásamt tveimur öðrum mönnum og var verðmæti þýfis áætlað ríflega ein milljón króna.

Samkvæmt sakavottorði ákærða fékk hann reynslulausn 24. desember 2009 í eitt ár á 88 daga eftirstöðvum fangelsisrefsingar. Það brot sem hann er nú sakfelldur fyrir er framið 16. febrúar 2010.Því er um rof á skilorði að ræða og eftirstöðvar fyrri refsingar tekin upp og dæmd með þessum dómi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Toyota Rav 2007
Toyota Rav 2007 ek.74.þús. sjálfskiptur heilsársdekk, nÝ skoðaður 2013 uppl. 69...
58 fermetrar
Til leigu húsnæði á annari hæð í Dugguvogi 6 (Fossberg) Eitt rými með litlum el...
Bókhald-ársreikningar-skattframtöl
VSK uppgjör, skattframtöl, launaútreikningar, erfðarfjárskýrslur, leigusamningar...
Lazy boy stóll - microfiber áklæði
Hef til sölu 6 ára gamlan lazy boy stól, raunverulegur lazy boy stóll, keyptur í...
 
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...
Bæjarlögmaður
Sérfræðistörf
Bæjarlögmaður Kópavogsbær auglýsir stö...