Fleiri sóttu um bæjarstjórastólinn

Frá Ísafirði.
Frá Ísafirði. mbl.is/Brynjar Gauti

Alls hafa 29 sótt um starf bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, en ekki 26 líkt og greint var frá í gær. Fram kemur á vef Bæjarins besta að nöfn þriggja umsækjenda hafi vantað á lista yfir umsækjendur sem Capacent sendi frá sér í gær.

Sú skýring hafi verið gefin að bilun í tölvubúnaði hjá Capacent hefði orðið til þess að þótt umsækjendur hefðu sent inn umsókn í tæka tíð hafi þær ekki skilað sér rétta leið.

„bb.is greindi frá því í gær að 26 hafi sótt um starf bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar samkvæmt lista frá Capacent. Stuttu seinna hafði Capacent samband og tilkynnti að eitt nafn hafi gleymst á listann vegna misskilnings. Enn bætast nöfn við og hafa nú bæst á listann hjá Capacent þeir Guðmundur Ingi Gunnlaugsson bæjarstjóri og Stefán Torfi Sigurðsson sérfræðingur.

Capacent biðst velvirðingar á þessum mistökum. Meðfylgjandi er heildarlisti yfir umsækjendur eins og hann lítur núna út. Frekari breytingar eða viðbætur verða birtar hér á bb.is jafnóðum og þær kunna að berast,“ segir á vef Bæjarins besta.

Listi yfir umsækjendur er því eftirfarandi:

Alfreð Erlingsson – Ísafjörður – Pípulagningameistari og viðskiptafræðingur
Ágúst Kr. Björnsson – Mosfellsbær – Fyrrverandi sveitarstjóri
Ágúst Már Garðarsson – Reykjavík–Yfirmaður í eldhúsi
Ágúst Önundarson – Kópavogur – MS í fjárfestingastjórnun
Ármann Jóhannesson – Reykjavík – Byggingaverkfræðingur
Ásgeir Magnússon – Akureyri – Forstöðumaður
Ásthildur Sturludóttir – Reykjavík – Verkefnastjóri
Björn Ingimarsson – Akureyri – Rekstrarráðgjafi
Björn Rúriksson – Selfoss – Rekstrarráðgjafi
Daníel Jakobsson – Mosfellsbær – Útibússtjóri
Garðar Garðarsson – Akranes – Vaktmaður
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson – Hella – Bæjarstjóri
Gunnar G. Magnússon – Flateyri – Yfirvélstjóri
Húni Heiðar Hallsson – Akureyri – Ml í lögfræði
Jarrett Iovine – Reykjavík – BA finnska
Jón Guðmundur Ottósson Kópavogur – Fyrrverandi forstöðumaður
Jón Hrói Finnsson – Ólafsfjörður – Þróunarstjóri
Magnús Guðjónsson – Kópavogur – Framkvæmdastjóri
Marthen Elvar Veigarsson Olsen – Ísafjörður – Afgreiðslustjóri
Nína Björg Sæmundsdóttir – Kópavogur – Rekstrar- og viðskiptafræðingur
Ragnar Jörundsson – Patreksfjörður – Bæjarstjóri
Ragnar Sigurðsson – Akureyri – Lögfræðingur
Ragnar Sær Ragnarsson – Reykjavík – Framkvæmdastjóri
Sigurður Sigurðsson – Garðabær – Byggingaverkfræðingur
Stefán Torfi Sigurðsson – Ísafjörður – Sérfræðingur
Valdimar Sigurjónsson – Hafnarfjörður – Forstjóri
Vilhjálmur Wiium – Reykjavík – Umdæmisstjóri
Þorgeir Pálsson – Hólmavík – Forstöðumaður
Þorsteinn Fr. Sigurðsson – Garðabær – Rekstrarhagfræðingur

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert