Betri horfur hjá lundanum

Varphlutfalli lunda í Vestmannaeyjum hefur aukist mjög frá fyrri árum. stækka

Varphlutfalli lunda í Vestmannaeyjum hefur aukist mjög frá fyrri árum. Ómar Óskarsson

Mun betur horfir hjá lundastofninum í Vestmannaeyjum nú í sumar en undanfarin ár. Ábúðarhlutfall í lundaholum í Eyjum hefur ekki verið betra síðan rannsóknir hófust 2007 og hefur nú náð landsmeðaltali, um 75% ábúðarhlutfalli, en það var um 50% í fyrra. 

Erpur Snær Hansen líffræðingur fór ásamt Marinó Sigursteinssyni pípulagningameistara í margar lundabyggðir í Vestmannaeyjum og víðar í sumar.  Erpur segir þessa breytingu í Eyjum vera vísbendingu um að lundinn upplifi eitthvað breytt ástand frá fyrri árum.

„Það eru um 240.000 pör sem bætast nú við þau sem verpa,“ sagði Erpur. „Lundinn í Eyjum byrjaði líka að verpa um tiu dögum fyrr nú en í fyrra sem er mikil breyting. En hins vegar er áberandi með Eyjar hvað mörg pör draga varp langt fram eftir sumri. Lundar voru enn að verpa eftir 15. júní.“

Enn hafa ekki fundist neinar pysjur í holum í Vestmannaeyjum en í lundabyggðum annars staðar á landinu hafa 10-50% eggja þegar klakist. Svo virðist sem varpið sé mun fyrr á ferðinni á Norður- og Austurlandi en á Suður- og Vesturlandi, að sögn Erps.

Veitt í fimm daga

Alls er óvíst hvenig lundapysjunum í Vestmannaeyjum reiðir af þegar þær loksins komast úr eggi. Ætisskortur hefur valdið miklum pysjudauða í Vestmannaeyjum undanfarin ár.

Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum ákváðu í gær að heimila lundaveiði í fimm daga í sumar. Ekki er búið að ákveða hvenær veiðidagarnir verða. Í fyrra var veiðitíminn síðast í júlí. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Umferðaróhapp á Hafnarfjarðarvegi

06:08 Umferðaróhapp varð laust eftir miðnætti á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnesbrú. Ökumaður var fluttur á slysadeild en meiðsl hans eru ekki talin alvarleg. Grunur leikur á um ölvun við akstur. Meira »
Repjuakur í blóma á Þorvaldseyri.

Repjuolía tilvalin á norðurslóðum

05:30 Brýnt er að aðrir orkugjafar en jarðdísilolía verði notaðir í skipasiglingum um norðurslóðir að sögn Jóns Bernódussonar, verkfræðings hjá Siglingastofnun, en brennsla hennar getur aukið á bráðnun íss á svæðinu. Meira »

Gríðarmikil óánægja með lokun útibúa

05:30 Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, kveðst hafa orðið var við gríðarmikla óánægju á meðal sveitarstjórnarmanna vegna ákvörðunar Landsbankans um fækkun starfsstöðva. Meira »

Loka þyrfti 15-20 hellum

Hellinum Jörundi hefur verið lokað fyrir allri umferð, bæði fyrir hellamönnum og öðrum, til að ...
05:30 Hellarannsóknafélag Íslands vill að 15-20 hellum á landinu verði lokað á næstu árum til að forða þeim frá skemmdum. Ef ekkert verði að gert skemmist hellarnir enn frekar. Um leið þurfi að huga að því að auðvelda aðgengi að þeim hellum sem hægt er að skoða án þess að valda skemmdum. Meira »

7.000 vinnustundir að baki

Á deildinni í Kópavogi verða átta rúm opin í sumar.
05:30 Að baki nýbyggingu við líknardeild í Kópavogi liggja nærri sjö þúsund vinnustundir en ljóst er að byggingin verður ekki tekin í notkun fyrr en í fyrsta lagi í haust sökum frekari sparnaðaraðgerða á Landspítalanum, sem fram hafa komið hjá Birni Zoëga, forstjóra Landspítalans. Meira »

Ótryggðir úti á túni

Vafi leikur á því í frumvarpinu hvort ökumenn sem lenda í umferðaróhappi á bílastæði væru ...
05:30 Alvarlegar athugasemdir eru gerðar við að slysatrygging ökumanns ökutækis verði takmörkuð frá því sem nú er og að hún gildi einungis í almennri umferð, þ.e. „á vegum sem opnir eru almenningi“. Tillaga þess efnis er í frumvarpi um ökutækjatryggingar sem liggur fyrir Alþingi. Meira »

Slitastjórn kannaði störf Pars Per Pars

05:30 Slitastjórn Glitnis lét kanna sérstaklega hvort tveir fyrrverandi lögreglumenn hefðu „stytt sér leið“ í störfum sínum fyrir slitastjórnina. Meira »

Bjartviðri víðast hvar

04:35 Breytileg átt, víða 3-8 m/s, verður á landinu í dag og bjartviðri, en skýjað og sums staðar þokuloft fram eftir morgni, einkum vestantil. Hæg austlæg eða breytileg átt undir hádegi og yfirleitt léttskýjað. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast í innsveitum. Meira »

Fimm teknir fyrir of hraðan akstur við Borgarnes

Lögreglan við eftirlit.
Í gær, 23:30 Fimm voru teknir fyrir að aka of greitt í grennd við Borgarnes í dag. Að öðru leyti virðist þessi fyrsta ferðahelgi sumarsins hafa gengið vel í umferðinni víðast hvar um landið. Meira »

Eldhúsdagsumræðu á Alþingi

Í gær, 21:07 Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi annað kvöld. Samkvæmt starfsáætlun þingsins á að fresta fundum Alþingis á fimmtudag, en talið er ólíklegt að sú áætlun standist. Meira »

Mótorhjólamenn fjölmenntu í messu

Kirkjugestir voru teknir til altaris.
Í gær, 21:56 Það var talsvert annað yfirbragð yfir messu í Digraneskirkju í kvöld en venjulega, en þar fór fram svokölluð mótorhjólamessa. Í kirkjunni voru leðurklæddir mótorhjólamenn og utan við kirkjuna var röð glæsilegra mótorhjóla. Meira »

Hrapaði ofan í gil

Slysið varð skammt frá Seljalandsfossi.
Í gær, 19:31 Bresk kona stórslasaðist þegar hún hrapaði ofan í gil stutt frá tjaldstæðinu við Hamragarða, skammt innan við Seljalandsfoss við Þórsmerkurveg. Meira »

Konan fannst látin

Í gær, 19:11 Lettneska konan sem leitað hefur verið að við Meðalfellsvatn fannst látin síðdegis í dag. Hennar hafði verið saknað frá 13. maí. Flest bendir til að talsvert sé síðan hún lést. Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
Í gær, 18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Bensíngjöfin festist niðri

Í gær, 17:46 Bifreið skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »

Sé ekki í samkeppni við þingið

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
Í gær, 18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem sé að vera sameiningarafl. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
Í gær, 18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunnar. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

Í gær, 17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til leigu mjög góð 2-herb,55 fm íbúð á 3hæð AKRANESI
Til leigu mjög góð 2-herb,55 fm íbúð á 3hæð AKRANESI Leiga 75þús með hita og ra...
GLÆSILEGIR
GLÆSILEGIR Teg. MYSTERY - Hægt að nota ÁN HLÝRA - Glæsileg blúnda, fæst í A, B, ...
HONDA CR-V STW 4WD
Honda cr-w 1998. Ekinn 222 þús.sjálfskiptur. Dráttarkúla.Topplúga. Nýr geymir. N...
Leiga á fellihýsi
Leiga á fellihýsi: Til leigu 10 feta Fleetwood fellihýsi með öllum útilegubúnaði...
 
Grunn og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Grunn- og leikskólakennarar ...
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...
15210 hjólbarðar
Tilboð - útboð
Útboð 15210 Hjól...