Fréttaskýring: Tvöföldun tefst vegna ágreinings um túlkun
Andri Karl andri@mbl.is
Ágreiningur um túlkun á ákvæði í útboðsgögnum var forsenda kæru Háfells ehf. vegna ákvörðunar Vegagerðarinnar um að taka tilboði Vélaleigu AÞ ehf. í útboði um tvöföldun Suðurlandsvegar frá Lögbergsbrekku að Litlu kaffistofunni. Kærunefndin féllst á túlkun Háfells en hafnaði bótaskyldu á þeim grundvelli að tilboð félagsins hefði líkt og tilboð Vélaleigu AÞ verið ógilt.
Í ákvæðinu er fjallað um þær kröfur sem gerðar eru til verktaka. Þar segir: „Einnig er gerð sú krafa að ársvelta fyrirtækis bjóðanda hafi að lágmarki verið sem nemur 50% af tilboði bjóðanda í þetta verk síðastliðin 3 ár.“ Vegagerðin hefur á umliðnum árum túlkað eigið ákvæði á þann hátt að meðaltalsvelta síðustu þriggja ára þurfi að hafa numið 50% af tilboði bjóðanda. Sé sú túlkun notuð er tilboð Vélaleigu AÞ gilt enda meðaltalsveltan 53,8% af tilboðsfjárhæð. Við þetta voru forsvarsmenn Háfells ósáttir og vildu meina að túlka bæri ákvæðið á annan hátt, þ.e. að að velta bjóðanda skuli hafa numið 50% af tilboði bjóðanda á ári hverju í þrjú ár. Vélaleiga AÞ náði því lágmarki ekki árið 2007 og því sé tilboðið ógilt.
Túlkað eftir orðanna hljóðan
Kærunefndin féllst á það með Vegagerðinni að meðaltalsvelta yfir ákveðið tímabil gefi raunhæfari mynd af rekstri fyrirtækja en ársvelta, ekki síst hjá verktökum. Hins vegar er bent á, að hafi það verið ætlun Vegagerðarinnar hefði einfaldlega átt að setja það fram í útboðslýsinguna með skýrum hætti. Það hafi ekki verið gert og mat nefndarinnar var að túlka yrði ákvæðið samkvæmt orðanna hljóðan.Háfell átti næsta tilboð fyrir ofan Vélaleigu AÞ og hefði í ljósi þessa átt að semja við félagið. Það verður hins vegar ekki gert þar sem forsvarsmenn þess skiluðu ekki til Vegagerðarinnar staðfestingu á, að það væri í skilum með opinber gjöld og lífeyrissjóðsgjöld. Reyndar lögðu forsvarsmenn félagsins fram yfirlýsingu þess efnis að þeirra gagna yrði aflað ef gengið yrði til samninga og Vegagerðin gerði ekki athugasemdir við það. Það dugði þó ekki til.
Vegna málsins hafa orðið nokkrar tafir á verkinu en til stóð að opna tvöfaldaðan veginn fyrir umferð um mitt næsta sumar. Hugsanlega þarf að hnika til dagsetningum vegna þessa en það er óvíst þar sem fleiri þættir spila inn í, s.s. veðurfar á Hellisheiði.
Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni leiðir einhvern kostnað af málinu og töfunum en hann hafi ekki verið reiknaður út. Líklega sé hann þó óverulegur og minnki eftir því sem verkinu miðar hraðar.
Útboðið í heild ekki ógilt
Vegagerðin gaf út í gær, að þar sem útboðið í heild hefði ekki reynst ógilt hefði verið ákveðið að kalla eftir frekari gögnum frá þremur verktökum, þ.e. þeim sem áttu fjórða til sjötta lægsta tilboðið. Þar á bæ er vonast til að hlutirnir gangi hratt og vel fyrir sig og fljótlega verði hægt að semja við verktaka sem stenst kröfur útboðsins. Fyrirtækin eru Ingileifur Jónsson ehf., Árni Helgason ehf. og verktakafélagið Glaumur ehf. – þau voru með sameiginlegt tilboð – og KNH ehf.Misjafnt er hvað samningar ganga hratt fyrir sig en venjulega tekur nokkrar vikur að ganga frá þeim.
ORÐALAG ENDURSKOÐAÐ
Ekki áður verið kvartað
Vegagerðin hefur undanfarin ár túlkað ákvæðið á þann veg að meðaltal tímabilsins gilti. Á þeim tíma hafa engar athugasemdir borist. Orðalag ákvæðisins verður þó eftir niðurstöðu kærunefndar útboðsmála endurskoðað og að öllum líkindum skýrt betur. Þetta staðfestir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar.Pétur tekur fram að fleira sé í skoðun þar sem verktakaiðnaðurinn sé að breytast mikið um þessa mundir. „Nú eru ennþá meiri sveiflur í þessum geira en áður þannig að það verður að fara vel yfir allt saman. Einnig er undirbúningstími allur að lengjast þannig að fleira verður tekið til skoðunar.“





































