Dró sér fé úr afgreiðslukassa

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu á þrítugsaldri í 30 daga skilroðsbundið fangelsi fyrir að draga sér fé, samtals rúmar 47 þúsund krónur, úr afgreiðslukassa Bónus-verslunar þar sem hún vann.

Þetta gerðist fyrir tæpum þremur árum. Fram kemur í dómnum, að konan játaði brot sitt greiðlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert