Lúðvík hættir í Hafnarfirði
Lúðvík Geirsson hefur ákveðið að láta af störfum sem bæjarstjóri í Hafnarfirði og tekur Guðmundur Rúnar Árnason, oddviti Samfylkingarinnar, við því starfi. Lúðvík segist taka þessa ákvörðun til að tryggja að bæjarstjórn fái nauðsynlegan starfsfrið.
„Í ljósi þeirra eftirmála nýliðinna kosninga og ákvarðana um skipan í embætti bæjarstjóra er einboðið að ekki mun ríkja sú almenna sátt sem er að mínu mati nauðsynleg til að viðhalda áfram víðtækri samvinnu og samráði í bæjarfélaginu.
Til að tryggja að bæjarstjórn fái þann starfsfrið sem nauðsynlegur er til að takast á við þau mikilvægu verkefni sem m.a. hafa verið kynnt í ítarlegri stefnuyfirlýsingu nýs meirihluta, hef ég óskað eftir því við bæjarfulltrúa sitjandi meirihluta að ljúka mínum störfum sem bæjarstjóri og ganga ekki frá ráðningasamningi til næstu tveggja ára eins og bæjarstjórn hafði samþykkt fyrir sitt leyti á fundi sínum þann 14. júní. Mun ég því láta af störfum bæjarstjóra Hafnarfjaðar frá og með deginum í dag," segir í yfirlýsingu, sem Lúðvík hefur sent frá sér.
Lúðvík hefur verið bæjarstjóri í Hafnarfirði undanfarin átta ár. Hann var í 6. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í maí en náði ekki kjöri og Samfylkingin missti hreinan meirihluta í bæjarstjórninni. Samfylkingin og Vinstrihreyfingin-grænt framboð sömdu um meirihlutasamstarf og var Lúðvík ráðinn bæjarstjóri en samið var um að Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, oddviti VG, tæki við eftir tvö ár.
Guðmundur Rúnar Árnason er 52 ára að aldri. Hann hefur setið í bæjarstjórn Hafnarfjarðar frá árinu 2002 og var varabæjarfulltrúi næsta kjörtímabil á undan. Á þessum tíma hefur hann m.a. átt sæti í bæjarráði og verið þar formaður. Hann hefur jafnframt verið formaður fjölskylduráðs og forseti bæjarstjórnar.
Guðmundur Rúnar er kvæntur Ingibjörgu Jónsdóttur, félagsfræðingi og á fjögur börn á aldrinum 9-32 ára. Hann er stjórnmálafræðingur að mennt og lauk doktorsprófi í stjórnmálafræði frá London School of Economics árið 1991.
|
|
Yfirlýsing Lúðvíks Geirssonar |
Bloggað um fréttina
-
Njörður Helgason Ekki erfitt að skipta inn í embættið. -
Björn Birgisson Gleðja íhaldið -
Gísli Foster Hjartarson Gleðiefni? -
Sævar Már Gústavsson Loksins! -
Sigurður Sigurðsson loksins pólitíkus sem fattar að honum er ekki vært -
Guðrún María Óskarsdóttir. Lúðvík Geirsson er maður að meiri, að skynja sitt samfélag. -
-
Erling Garðar Jónasson Að setja kúrsin á rétta strikið!.
Innlent »
- Stöðvaður eftir ofsaakstur
- Alsírsku drengirnir áfrýja
- Listflug við Reykjavíkurflugvöll
- Ákærður fyrir að stinga mann
- Landsbjörg leitar enn að Ligitu
- Klára kvótamálin í vikunni
- Hreint hjarta besta myndin
- Mætti innbrotsþjófum í forstofunni
- Veðurblíða víða um land
- Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af
- Kosningamiðstöð Þóru opnuð
- Ferry heillaði í Hörpu
Sunnudagur, 27.5.2012
-
Peningar ekki rót alls ills
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 8. júlí 2010, Innlent Sér eftir Lúðvík
- Sunnudagur, 31. janúar 2010, Innlent Guðmundur Rúnar í fyrsta sæti í Hafnarfirði
- Mánudagur, 14. júní 2010, Innlent Mótmæla nýjum meirihluta í Hafnarfirði
- Mánudagur, 23. nóvember 2009, Innlent Lúðvík í baráttusætið í janúar
- Mánudagur, 31. maí 2010, Innlent Stefnir í vinstristjórn í Hafnarfirði
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú



































