Enn ríkir neyð á Haítí, sex mánuðum eftir skjálftann
Rauði krossinn minnist þess nú að á morgun, mánudaginn 12. júlí, verða sex mánuðir liðnir frá jarðskjálftanum mikla á Haítí, einum mannskæðustu náttúruhamförum um áratugaskeið. Sendifulltrúar Rauða kross Íslands sem hafa verið á Haítí komu saman í höfuðstöðvum félagsins í dag, sunnudag, til að ræða ástandið á jarðskjálftasvæðinu.
Alls hafa 25 hjálparstarfsmenn Rauða kross Íslands starfað á Haítí og þar eru sex nú við lækningar, hjúkrun og stjórn verkefna á sviði vatnsöflunar og hreinlætis, segir í frétt frá Rauða krossi Íslands.
Að minnsta kosti 223.000 manns létu lífið í skjálftanum og 300.000 slösuðust. Rauði krossinn hóf samstundis dreifingu hjálpargagna sem voru í vöruskemmum á staðnum en síðan hófst einhver umfangsmesta hjálparaðgerð samtakanna sem um getur.
Rauði kross Íslands hefur tekið þátt í aðgerðunum frá upphafi með mannafla, fjárstuðningi og sendingu hjálpargagna. Sendifulltrúar félagsins hafa hjúkrað slösuðum, skipulagt hjálparstarfið, stjórnað dreifingu matvæla og unnið að útvegun vatns og salerna í flóttamannabúðum í og við höfuðborgina Port-au-Prince.
Stjórnvöld og almenningur á Íslandi hafa stutt hjálparstarfið með fjárframlögum, fyrirtæki gáfu eða veittu afslátt af margvíslegum hjálpargögnum og utanríkisráðuneytið lagði til flugvél undir vöruflutninga, þá sömu og náði í Alþjóða björgunarsveitina þegar verki hennar var lokið á Haítí.
Ein og hálf milljón manna er enn heimilislaus á Haítí vegna jarðskjálftans. Rigningatímabilið stendur yfir og margir hafa einungis plastdúka til skjóls. Búist er við að það taki að minnsta kosti ár, og líklega fleiri, að koma öllum í bráðabirgðahúsnæði.
Þrátt fyrir það hefur gengið vel að útvega og dreifa matvælum, vatni og efni til að gera einfalt skýli fyrir veðri og vindum. Á þessum sex mánuðum hafa 135.000 manns fengið læknisaðstoð hjá Rauða krossinum, rúmlega 150.000 verði bólusettir gegn algengum sjúkdómum, og samtökin dreifa daglega vatni í tankbílum til 285.000 manna.
Innlent »
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 31. mars 2010, Innlent Hjúkrunarfræðingur til Haítí
- Fimmtudagur, 4. febrúar 2010, Innlent Íslenskir hjúkrunarfræðingar til Haítí
- Fimmtudagur, 10. júní 2010, Innlent Fimm á vegum Rauða krossins á Haítí
- Miðvikudagur, 13. janúar 2010, Innlent Rauði krossinn með símasöfnun vegna jarðskjálftans
- Þriðjudagur, 19. janúar 2010, Innlent Íslenskur læknir á leið til Haítí
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































