Íhugar að kæra Magma-málið til ESA
„Ég breytti ekkert um skoðun. Mér finnst þetta ennþá vera 2007 hugsunarháttur, þar sem alltaf er reynt að láta lögin gilda fyrir alla hina en ekki mann sjálfan,“ segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar.
Rétt í þessu lauk fundi iðnaðarnefndar Alþingis, sem Margrét óskaði eftir, til að ræða um málefni Magma Energy og kaup félagsins á HS Orku í gegnum skúffufélag í Svíþjóð. Margrét segir fundinn hafa verið góðan og upplýsandi, en þó hafi ekki beinlínis fengist botn í málið.
„Það kom fram að ekki hefur verið leitað álits Eftirlitsstofnunar EFTA og það getur í raun hver sem er gert það," segir Margrét. Ákvörðun nefndar um erlenda fjárfestingu er stjórnvaldsákvörðun og er kæranleg til Eftirlitsstofnunarinnar (ESA), sem sker úr um það hvernig framkvæma eigi EES-samninginn
„Mér finnst það mjög áhugaverður kostur og full ástæða til að skoða það," segir Margrét.
Hún er enn á þeirri skoðun að í þessu tilfellu sé fyrirtækið að reyna að finna sér leið undan lögum og reglum með klókindum og stjórnvöld beiti þröngri túlkun laga um leið og þau hunsi anda sömu laga. ,,Tilgangurinn með lagasetningunni var að takmarka erlenda fjárfestingu í þessum þremur geirum," segir Margrét og vísar í sjávarútveg, orkuframleiðslu og flugrekstur.
Bæði Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra kváðust á fundinum vilja breyta lögum um erlenda fjárfestingu, að sögn Margrétar. Þá hefur meirihluti nefndar um erlenda fjárfestingu ítrekað hvatt ráðherra til þess að breyta lögunum, en ekkert hefur hreyfst í ráðuneytunum í þá átt. Því er nokkuð ljóst að ekki er sátt í ríkisstjórninni um það hvort og þá hvernig eigi að breyta lögunum um erlenda fjárfestingu.
Bloggað um fréttina
-
percy B. Stefánsson Lykteyðandi efna er þörf! Ódaun leggur enn yfir stjórnsýsluna! -
Sigurður Haraldsson Takk Margrét Tryggvadóttir. -
Jóhannes H. Laxdal Mismunun eftir búsetu ? -
Sigurður Þórðarson Hreyfingin starfar í almannaþágu -
Axel Jóhann Hallgrímsson Gullið tækifæri til að slá aftur dauða flugu, í gömlu ... -
Lísa Björk Ingólfsdóttir Þingmenn Hreyfingar halda áfram tiltekt í þágu almennings. -
Hjalti Elíasson Auðvitað, og þó fyrr hefði verið. -
Lúðvík Júlíusson Drífið ykkur í að kæra! -
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir Stöndum við bakið á henni... -
Kristinn Karl Brynjarsson Katrín og Gylfi, vilja breyta lögum núna. Afhverju ekki í ... -
Guðrún María Óskarsdóttir. Hafa hinir stjórnmálaflokkarnir í landinu enga skoðun á þessu máli ...
Innlent »
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 10. júlí 2010, Innlent Vill fund um Magma í iðnaðarnefnd
- Þriðjudagur, 13. júlí 2010, Innlent Hæpið að kæra til ESA
- Mánudagur, 12. júlí 2010, Innlent Fundað um Magma í iðnaðarnefnd
- Fimmtudagur, 5. ágúst 2010, Innlent Vill ekki skipa Svein
- Sunnudagur, 11. júlí 2010, Innlent Unnið að fundi í iðnaðarnefnd
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































