Falleinkunn fyrir ríkisstjórnina
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins, segir stjórnvöld hafa unnið að því að flækja skattkerfið. mbl.is/Árni Sæberg
Tillögur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) í skattamálum ganga, að mati Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins, allar út á það að vinda ofan af aðgerðum ríkisstjórnarinnar sl. ár. Við fyrstu sýn kunni að líta út fyrir að stjórnvöld séu að reyna að leita sér skjóls í hugmyndum AGS, en þegar betur sé að gáð þá sé það ríkisstjórnin sjálf sem á frumkvæðið að því að fá hugmyndir AGS um skattahækkanir fram.
„Það er athyglisvert að hugmyndir AGS gangi meira og minna allar út á það að vinda ofan af því sem ríkisstjórnin hefur verið að gera sl. ár,“ segir Bjarni. AGS leggi t.a.m. í tillögum sínum áherslu á breiða skattstofna og einfalt kerfi, en ríkisstjórnin hafi undanfarið ár unnið að því að flækja skattkerfið. „Það er líka augljóst að AGS vill allt til þess vinna að forðast skattahækkanir og það kemur berlega fram í skýrslunni að til slíkra úrræða eigi ekki að grípa fyrr en í lengstu lög. Í þessu samhengi æpir aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum enn meira á mann.“
Sjálfstæðismenn hafi frá upphafi lagt áherslu á nauðsyn öflugra skattstofna og að efla þyrfti atvinnu og efnahagslíf þjóðarinnar. „Á meðan hefur ríkisstjórnin skilað auðu í þessum efnum og kemur einungis með ítrekaðar hugmyndir um hærri skatta.“
Tillögur að skattahækkunum séu þó slæm tíðindi og komi á versta mögulega tíma fyrir fyrirtæki og heimilin í landinu.
Tillöguna um lægri mörk hátekjuskatts þarf hins vegar að skoða í heildarsamhengi að mati Bjarna, en sú tillaga gangi m.a. út á að stíga skref til baka og einfalda skattkerfið. „Með henni er AGS að segja að við eigum ekki nota skattkerfið til tekjujöfnunar, en þessi ríkisstjórn hefur einmitt lýst því yfir að hún ætli að nota skattkerfið til tekjujöfnunar. Þetta er því falleinkunn fyrir skattastefnu ríkisstjórnarinnar.“
Sjálfur kveðst Bjarni vita að AGS hafi mun meiri áhyggjur af hvernig Ísland ætli að vinna sig út úr kreppunni "Og það er á það atriði sem ríkisstjórnin ætti að beina sjónum sínum, ekki á nýja skatta."
Bloggað um fréttina
-
Torfi Kristján Stefánsson Snillingurinn Bjarni! -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Pissar í skóinn sinn -
Lísa Björk Ingólfsdóttir Bjarni lúmskur. -
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir Menn að vakna... -
-
Sigurður Haraldsson Skilaboð til Bjarna! -
Tryggvi Marteinsson 13.júlí 2010 - Bjarni sendill saklausi. -
Sigurður Sigurðsson Bíddu aðeins hægur Bjarni
Innlent »
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 12. júlí 2010, Innlent Óráðlegt að hækka skatta
- Þriðjudagur, 13. júlí 2010, Innlent Útilokar ekki skattahækkanir
- Þriðjudagur, 27. apríl 2010, Innlent „Skuldarar hrópa á réttlæti“
- Fimmtudagur, 11. ágúst 2011, Innlent Segja Ísland vera háskattaríki
- Fimmtudagur, 16. desember 2010, Innlent Telja ríkisstjórnina þurfa endurskoða vinnubrögð sín
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































