Varar við heljarstökkum í skattheimtu og niðurskurði
„Maður með 3-400 þúsund krónur á mánuði er ekki hátekjumaður í mínum huga. Við skulum ekki einu sinni byrja að ræða slíkt fyrr en við erum komin yfir 600 þúsund krónur á mánuði.“ segir Ögmundur Jónasson, þingmaður VG.
Í nýjum tillögum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um breytingar á skattkerfinu hér á landi er meðal annars lagt til að hátekjuskattur verði lagður á 375 þúsund krónur og yfir í mánaðarlaun. Hátekjuskattur er í dag miðaður við 650 þúsund krónur á mánuði.
Ögmundur hvetur til varfærni og yfirvegunar og segir að skoða eigi allar hugmyndir um skattahækkanir með tilliti til þanþols heimila og fyrirtækja. „Ég vara við öllum heljarstökkum í skattlagningu og niðurskurði í velferðarmálum.“ Ögmundur segist jafnframt hafa efasemdir um að ganga eigi lengra í skattheimtu gagnvart meðal- og lágtekjufólki í samfélaginu. „Það er ekki endalaust hægt að skattleggja einstaklinga og fyrirtæki, það þarf að hyggja að þanþolinu.“
Ögmundur telur að leggja eigi áherslu á fjármagnstekjuskatt og jafnframt skatt á auðlindanýtingu og stóriðju. „Það er kominn tími til að stóriðjan leggi hressilega til þjóðarbúsins.“ Þá vill hann ennfremur flýta skattlagningu á séreignarsparnað lífeyrissjóða. „Við vitum að sá skattur mun koma til sögunnar og spurningin er hvort sé ekki sé hyggilegt að gera það í þeim aðstæðum sem við búum við í dag.“
Hugmyndirnar eru fíflagangur
Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, segir tillögur AGS um að lækka hátekjuskatt niður í 375 þúsund krónur á mánuði vera „fíflagang“.
Í tillögunum er ennfremur lagt til að hækka virðisaukaskatt umtalsvert; úr 7% í 25,5% á bækur, tímarit og geisladiska og úr 7% í 14% á matvöru.
„Þetta er þessi klassíska nýfrjálshyggjuleið að skattleggja neyslu almennings. Þetta bitnar á þeim sem þurfa að eyða meiru í mat og nauðsynjar. Þetta eru tillögur AGS um nýfrjálshyggjuskattlagningu og ómerkilegar sem slíkar,“ segir Þór.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Sigurðsson Nákæmlega Þór Saari, eintómur fíflagangur í AGS -
Torfi Kristján Stefánsson Popularistinn Ögmundur -
Hafþór Baldvinsson Villandi upplýsingar - nýtt skattkerfi
Innlent »
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
- Mánudagur, 24. maí 2010, Innlent Finna þarf fleira en niðurskurð
- Föstudagur, 15. apríl 2011, Innlent S&P mun ekki taka afstöðu til þess hvort rangt hafi verið að hafna Icesave-lögunum
- Sunnudagur, 14. mars 2010, Innlent Umræða um Icesave skilað árangri
- Fimmtudagur, 28. janúar 2010, Innlent Peningagjöf í rannsóknarsjóð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































