Afturkalli tilmæli sín
Talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason, hefur beint því formlega til Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands að afturkalla tilmæli þessara stofnana til fjármálafyrirtækja frá 30. júní sl. vegna valdþurrðar, rangs lagagrunns, skorts á lagastoð að formi og efni til og ónógs undirbúnings. Þetta kemur fram á vef talsmanns neytenda. Þar kemur fram að umboðsmanni Alþingis og ríkisstjórninni hafi verið send afrit af ábendingu talsmanns.
Á vef talsmanns neytenda kemur fram að ábending hans byggist á því að FME og SÍ hafi ekki valdheimildir til þess að senda umrædd tilmæli, auk þess sem þau séu byggð á röngum lagagrunni. Enn fremur hafi tilmælin ekki fengið réttan undirbúning.
„Ábending þessi er í samræmi við þau áform sem ég kynnti opinberlega í kjölfar dóma Hæstaréttar um sjálfstæð viðbrögð af hálfu talsmanns neytenda yrðu viðbrögð fjármálafyrirtækja og stjórnvalda ekki fullnægjandi gagnvart neytendum, sbr. og svarbréf mitt, dags. 21. júní sl., til efnahags- og viðskiptaráðherra um viðhorf embættisins til þess hvernig mætti vinna úr þeirri stöðu sem upp væri komin í kjölfar dómanna.
Sem fyrr er ég sem talsmaður neytenda vitaskuld reiðubúinn til samráðs við alla sem eiga í hlut um rétt viðbrögð í þágu neytenda og annarra lögmætra hagsmuna. Ég tel rétt að stofnanirnar endurskoði aðkomu sína að málinu að höfðu samráði við fulltrúa helstu hagsmunaaðila - að teknu tilliti til þeirra lagaröksemda sem að framan greinir,“ segir m.a. á vef talsmannsins.
Þar er jafnframt bent á að sjaldgæft sé að embættið sendi öðrum stjórnsýsluaðilum formlega ábendingu. Það hefi aðeins gerst tvívegis áður, annars vegar til eftirlitsnefndar með starfsemi fasteignasala 2007 og hins vegar 2009 til Lögmannafélags Íslands sem eftirlitsaðila með innheimtustarfsemi lögmanna.
Frétt á vef talsmanns neytenda
Bloggað um fréttina
-
S i g u r ð u r Sigurðarson Embættið, það er ég, ég, ég, ég, ég ... -
Sigurður Þorsteinsson Öflugur Talsmaður neytanda
Innlent »
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 30. júní 2010, Innlent Einhliða aðgerð án alls samráðs
- Miðvikudagur, 21. júlí 2010, Innlent Spyr um tryggingar varðandi hugsanlegar fjárkröfur
- Föstudagur, 2. júlí 2010, Innlent Neytendur njóti vafans
- Miðvikudagur, 23. febrúar 2011, Innlent Fresta riftun bílasamninga
- Föstudagur, 18. júní 2010, Innlent Vill sátt um skuldauppgjör
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































