Útlit fyrir gott helgarveður
Það er útlit fyrir að gott veður verði víðast hvar á landinu um helgina. Á laugardag er spáð allgóðu sumarveðri um mikinn hluta landsins. Víða verður hitinn á bilinu 15-20 stig. Það mun hins vegar draga úr mestu hlýindunum á sunnudag.
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, segir í veðuryfirliti fyrir mbl.is, að það merkilega virðist ætla að fara gerast að veður fari hlýnandi á landinu á föstudag með norðan-og norðaustanátt en slíku eigi landsmenn ekki að venjast.
Ástæðan sé sú að fyrir vestan og norðvestan landið sé hlýr loftmassi sem eigi greiða leið yfir landið við þessar aðstæður. Á sama tíma sé nokkuð djúp lægð á sveimi við Færeyjar og á austanverðu landinu sé spáð allhvössum vindi á morgun og lítilsháttar rigningu um tíma. Reikna megi með snörpum vindhviðum um skeið á kafla suðaustanlands, frá því austan Hafnar og áfram langleiðina í Breiðdal.
Um vestanvert landið verði því sem næst heiðríkt ef af líkum lætur og ekki lengur skilyrði til bólstramyndunar að ráði og síðdegisskúra. Víðast verður létt gola og hiti allt að 15 til 19 stig.
Sama má segja um Suðurland, og reyndar einnig Norðurland að sögn Einars. Þar verður úrkomulaust og léttskýjað víðast hvar, en heldur svalara þar sem vindur stendur af hafi.
Allgott sumarveður á laugardag
Á laugardag er spáð allgóðu sumarveðri um mikinn hluta landsins. Víða verður léttskýjað og nokkuð hlýtt í veðri. Hiti verður allt að 15 til 20 stig á Vesturlandi og Vestfjörðum og suðvestanlands og á Suðurlandi alveg austur á Hornafjörð eða þar um slóðir.
Eini landshlutinn sem sker sig úr er Norðaustur- og Austurland. Þar gengur norðanáttin að mestu niður, en engu að síður verður þar skýjað að mestu, einhver úrkoma hér og þar og heldur svalara.
Á Norðurlandi er hins vegar gert ráð fyrir að veður verði yfirleitt þurrt og nokkuð bjart, en hætt við þoku úti við sjávarsíðuna. Víða það þó alveg ágætasta veður. Svo hæglátt verður að mjög víða má gera ráð fyrir einkar fallegu kvöldhúmi og mildri nótt, einnig á hálendinu.
Dregur úr mestu hlýindunum
Á sunnudag verður meira skýjað á landinu og dregur nokkuð úr mestu hlýindunum. Smávægileg súld eða rigning verður á annesjum norðanlands og norðaustanlands, en annars þurrt.
Einna helst að það sjáist til sólar suðvestan- og sunnanlands og eins suðustanlands. Í þessum landshlutum má gera ráð fyrir allt að 15 til 19 stiga hita. Eins sums staðar vestanlands og á Vestfjörðum, einkum sunnantil. Vindáttin verður norðlæg í grunninn, en vindur hægur og gera má ráð fyrir hafgolu, til að mynda við Faxaflóa.





































