Fréttaskýring: Öll þjóðin rúmast í ferðavögnum sínum
Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is
Mikið hefur borið á þjófnaði á tjaldvögnum og fellihýsum að undanförnu og lögreglu hefur gengið illa að hafa uppi á vögnunum. Grunur leikur á að um skipulagða brotastarfsemi sé að ræða og maður var handtekinn á fimmtudagskvöld grunaður um að hafa tekið vagna fyrir utan Ellingsen aðfaranótt miðvikudags og fyrir framan Víkurverk föstudaginn 9. júlí.
Lögregla segir að þrátt fyrir að slíkur þjófnaður hafi ávallt tíðkast að einhverju marki hér á landi hafi hann aldrei áður verið í líkingu við það sem er í dag.
Ferðavagnar eru um margt þægilegir valkostir fyrir þjófa. Í þeim felast iðulega umtalsverð verðmæti, nýtt fellihýsi getur kostað hátt í þrjár milljónir króna, og líkt og upptökur frá Ellingsen og Víkurverki sýndu reyndist það ekki þjófinum mikið verk að stela vögnunum. Þeir eru yfirleitt njörvaðir fastir niður með keðju, ef þeir eru þá læstir, og því er þjófnaðurinn jafnan ekki svo ólíkur því að hnupla reiðhjóli.
Gífurleg fjölgun ferðavagna á góðæristímanum
Eftirlit lögreglu með þessum gripum er jafnframt erfiðleikum bundið enda fjölgaði þeim gífurlega hratt á góðæristímanum. Nýskráningar á ferðavögnum næstum þrefölduðust milli ára 2003 til 2007. 9.777 ferðavagnar hafa verið nýskráðir hér á landi á fyrsta áratug 21. aldar og í dag eru á skrá 15.512 vagnar, þar af 9.527 tjaldvagnar. Þetta gerir um einn ferðavagn á hverja 20 íbúa Íslands. Að sögn kunnugra má hæglega koma fyrir 20 mönnum í einu fellihýsi, hvað þá hjólhýsi, sé vilji fyrir hendi. Þá er einnig ljóst að fellihýsi og hjólhýsi urðu mikil tískubóla hér á landi. Nýskráningar fellihýsa tæplega sexfölduðust milli áranna 2004 og 2007. 93 voru nýskráð árið 2004 en 530 árið 2007. Nýskráning hjólhýsa rauk einnig skyndilega upp úr öllu valdi. Árið 2003 voru nýskráð 37 hjólhýsi hér á landi og var það töluvert meira en áður hafði verið. Vinsældir þeirra stigmögnuðust ár frá ári og voru nýskráningar árið 2007, við sólsetur góðærisins, 785 talsins eða ríflega tuttugufalt fleiri en árið 2003.Eftir efnahagshrun hefur fólk róast í að fjárfesta í ferðavögnum líkt og öðrum jarðneskum eigum. Aðeins 131 hjólhýsi var nýskráð árið 2009 og 225 fellihýsi. Og það sem af er ári 2010 hafa aðeins 60 fellihýsi verið nýskráð og 56 hjólhýsi. Hins vegar hafa ferðalög innanlands aukist mikið í kjölfar kreppunnar og kaupmáttur minnkað umtalsvert um leið. Að sögn starfsmanna Víkurverks er mikil eftirspurn eftir notuðum fellihýsum um þessar mundir. Og þar liggur vafalaust ástæðan fyrir auknum þjófnaði á þeim í júlí – það er tiltölulega auðvelt að koma notuðum ferðavögnum í verð. Augnablikið er einmitt núna því fáir íhuga að fjárfesta í ferðavagni á haustin og veturna.
Auknar vinsældir» Nýskráning hvers kyns ferðavagna tók gríðarlegan kipp hér á landi á góðæristímanum. Til dæmis fjölgaði nýskráningum hjólhýsa ríflega tuttugufalt á nokkrum árum.
» Mikil aukning á þjófnaði á ferðavögnum fylgir eflaust í kjölfarið á því að eftirspurn eftir notuðum eintökum hefur aukist mikið. Fólk ferðast minna innanlands og hefur minna milli handanna.
» Hér á landi eru nú skráðir 15.512 ferðavagnar, það er um 1 vagn á hverja 20 Íslendinga.





































