6200 hafa skrifað undir áskorun Bjarkar

Björk í Norræna húsinu
Björk í Norræna húsinu Árni Sæberg

Yfir 6200 manns hafa ritað nafn sitt undir áskorun Bjarkar Guðmundsdóttur og fleiri til stjórnvalda um að koma í veg fyrir sölu á HS Orku og láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um eignarhald á orkuauðlindum og nýtingu.

Á fundi Norræna húsinu í gær hvatti Björk Íslendinga til að skrifa undir.

Margs konar upplýsingar um málefni Magma og söluferlið á hlut í HS orku er að finna á undirskriftavefnum.

„Það er brýnt að við drögum lærdóm af þeim mistökum sem gerð hafa verið og þess vegna viljum við hvetja almenning í landinu til þess að sýna stjórnmálamönnum aðhald með því að lýsa vilja sínum um framtíðarskipan eignahalds á orkuauðlindunum,“ segir á vefnum.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert