Fréttaskýring: Á að borga fyrir Icesave með náttúruauðlindum?

Björk Guðmundsdóttir benti á að margt væri óljóst varðandi söluna á hlut í HS orku ... stækka

Björk Guðmundsdóttir benti á að margt væri óljóst varðandi söluna á hlut í HS orku til Magma Energy. mbl.is/Árni Sæberg

Morgunblaðið Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is

„Ætlum við að borga fyrir Icesave-skuldir útrásarvíkinganna með náttúru okkar?“ spurði söngkonan Björk Guðmundsdóttir í Norræna húsinu í gær.

Björk varpaði fram fjölda spurninga um sölu á hlut í HS orku til Magma Energy á blaðamannafundi sem boðað var til í gær til að vekja athygli á undirskriftarsöfnun á vefnum www.orkuaudlindir.is þar sem skorað er á stjórnvöld að koma í veg fyrir sölu á hlut í HS orku til Magma Energy og hvatt til að boðað verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um eignarhald á orkuauðlindum og nýtingu þeirra.

Uppúr hádegi í gær höfðu um 1500 manns skrifað undir, um kvöldmatarleytið voru undirskriftirnar orðnar 3000 og um kl. 22.30 höfðu nær 4000 ritað nafn sitt á vefsíðuna.

Jón Þórisson arkitekt og aðstoðarmaður Evu Joly var ómyrkur í máli á fundinum og sagði að söluferlið til Magma væri „í boði sama fólks og lagði á borð fyrir bankaveisluna.“

Kannað verði hvort hagsmuna almennings sé gætt við söluna

Björk hefur ásamt Jóni og Oddnýju Eiri Ævarsdóttur rithöfundi sent umboðsmanni Alþingis ábendingu þar sem mótmælt er sölu á hluti í HS orku til Magma Energy. Þremenningarnir fara fram á að umboðsmaður taki söluferlið til skoðunar og „kanni hvort hagsmuna almennings hafi verið gætt á fullnægjandi hátt í málinu og hvort málsmeðferð stjórnvalda í málinu hafi samræmst lögum og vönduðum stjórnsýsluháttum,“ eins og segir í ábendingunni.

Á fundinum í gær varpaði Björk meðal annars fram þeirri spurningu hvort ekki þyrfti að rannsaka söluferli til Magma Energy. „Þurfum við að fá skýrslu um auðlindir eins og skýrslu um bankana?“

Björk benti á að margt væri óljóst varðandi söluna og gagnrýndi að stór hluti kaupverðs væri fenginn að láni. „Að sögn mun salan til Magma Energy gagnast efnahagslífinu þar sem um erlenda fjárfestingu er að ræða. Hvernig stemmir það við þá staðreynd að 70% kaupverðsins eru fjármögnuð með innlendu kúluláni með veði í hlutabréfunum?“ spurði Björk.

Þá varpaði hún því fram hvort ekki væri meiri möguleiki að „við getum borgað skuldir okkar ef við höldum fullum yfirráðum yfir auðlindum okkar og græðum á þeim sjálf?“

Að lokum bað Björk fólk um að velta fyrir sér hvort barnabörn okkar yrðu ánægð með samninginn og sölu auðlindanna.

Engar spurningar leyfðar

Engar spurningar voru leyfðar á blaðamannafundi Bjarkar Guðmundsdóttur í Norræna húsinu síðdegis í gær. Blaðamenn frá flestum fjölmiðlum landsins mættu til fundarins en í upphafi tilkynnti Oddný Eir Ævarsdóttir að ekki yrði tekið við spurningum. Jón Þórisson tók til máls og hvatti almenning til að skrifa undir áskorun til stjórnvalda um að rifta samningi við Magma Energy og boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um náttúruauðlindir. Þá las Björk upp gagnrýnar spurningar um söluferlið og þýðingu Magma-samningsins fyrir Íslendinga. Einnig hvatti hún „rannsóknarblaðamenn Íslands“ til þess að skoða málið ofan í kjölinn. Að því loknu tók Björk þrjú lög og gekk svo úr salnum.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Íslenska lagið fékk 46 stig

22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Grétu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næst mest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvísjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigur þess mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á manninn þar sem hann hékk á klettanös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19 landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Bókhald-ársreikningar-skattframtöl
VSK uppgjör, skattframtöl, launaútreikningar, erfðarfjárskýrslur, leigusamningar...
Vilt Þu Aukatekjur
1 ár hysing + .com url + website builder = 25000 isk http://www.extrapaid.com/...
Yndislegur HRFÍ Maltese hvolpur til sölu
7 mánaða gamall og með ættbók frá HRFÍ. Foreldrar eru Alþjóða- og íslenskir meis...
VW TOUAREG V6 TDI
Tilboð 4.200 þ. kr. Ásett 4.600 þ. kr., árg.2005, akst. 110.000 km. Álfelgur, au...
 
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...